Ég hef verið afskaplega löt að taka myndir í ár og veit ekki alveg hver ástæðan er. Ætli það sé nokkuð flóknara en svo að áhugamál koma stundum í "bylgjum" og liggja svo í hálfgerðu dái á milli. En núna nýlega hef ég farið í tvígang út með myndavélina af því mig LANGAÐI til þess, svo ég er kannski á batavegi.Í dag fórum við Valur út á Svalbarðseyri og ég tók myndir þar, þó staðsetningin sem slík sjáist nú ekki á meðfylgjandi mynd. En hvönnin í haust/vetrarbúningi er alltaf vinsælt myndefni hjá mér og ekki skemmir fyrir þegar tjörnin fyrir aftan gefur svona fallega bláan bakgrunn.Annað sem ég hef verið löt að gera, er að blogga. Það dugði ekki einu sinni að útbúa mína persónulegu bloggáskorun - 100 bloggfærslur á árinu. Ef ég á að ná því þá verða fleiri en ein færslur suma daga ;-)P.S. Þetta er bloggfærsla 10/100 í bloggáskorun ársins 2021
mánudagur, 11. október 2021
Áhugamál - hæðir og lægðir
fimmtudagur, 2. september 2021
"Skaut sjálfa mig í fótinn" í gær
Ég sem sagt fór í leikfimitíma á þriðjudaginn og var mjög lúin eftir hann, þrátt fyrir að finnast ég ekki gera neitt ... Ákvað þess vegna að taka því rólega í gær svo ég kæmist nú örugglega í leikfimitímann í dag. Það gekk nokkuð vel framan af degi, ég fór bara í sundið og tíndi smá rifsber úti í garði. Missti mig ekki neitt í þrif eða tiltekt hér innanhúss.
Ljósmyndaklúbburinn minn ætlaði að hittast klukkan fimm úti í Krossanesborgum og ég spurði sérstaklega að því hvort þetta ætti að vera ganga eða ljósmyndaRÖLT. Það var hið síðarnefnda svo ég hugsaði að þá væri mér óhætt að mæta. Við vorum nú bara fjórar og byrjuðum á gangstígnum en færðum okkur fljótlega af honum og uppá klöpp þar sem við sáum betur yfir. Síðan leiddi eitt af öðru, við röltum lengra út í móa, fundum bláber sem var bara dásamlegt - fullt af berjum og við tíndum upp í okkur hverja lúkuna á fætur annarri.
Svo ákváðum við að færa okkur aðeins og fyrr en varði vorum við komnar töluvert langt frá stígnum. Til að komast inná hann aftur þurftum við að klöngrast í þýfðu undirlendi þar sem maður sá ekki "fóta sinna skil" fyrir háu grasi og reyndi mikið á ökkla og hné. Það hafðist nú allt en í gærkvöldi var ég orðin undirlögð af verkjum í fótunum og er enn í dag.
Ef ég væri "eðlileg manneskja" færi ég í leikfimina þrátt fyrir smá þreytuverki, en eins mikið og mig langar nú að fara þá væri það ekki gáfulegt. Svo ég verð að bíta í það súra epli að láta skynsemina ráða. Hefði reyndar átt að láta hana ráða í gær - en langaði of mikið að hitta stelpurnar 😉
P.S. Þetta er bloggfærsla 9/100 í bloggáskorun ársins 2021
fimmtudagur, 28. janúar 2021
Konan var komin með kofaveiki
Ef það er hægt að tala um kofaveiki (e. cabin fever) þegar maður er í raun ekki innilokaður. Og ég kemst í sund og út að ganga og í verslanir og ... En engu að síður er ég orðin þreytt á tilbreytingarleysinu sem fylgir þessu covid ástandi, það verður bara að segjast eins og er. Það er kannski hálf fyndið í ljósi þess að ég er alls ekki manneskjan sem er út um allt svona dags daglega. Við lifum frekar rólegu lífi.
Ég fann það samt um daginn þegar ég fór suður að heimsækja fólkið mitt (mömmu og Andra og fjölskyldu), hvað það léttist á mér brúnin þegar ég var lögð af stað keyrandi suður yfir heiðar.
Eiginlega finnst mér það hálfgert vanþakklæti að vera svona leið á þessu - það hefur enginn mér nákominn veikst og við Íslendingar höfum haft það ótrúlega gott miðað við margar aðrar þjóðir. En það breytir því samt ekki hvernig mér líður.
Ég var eitthvað að ræða þetta við Val í kvöldmatnum fyrr í vikunni og þá stakk hann uppá því að við færum út á Svalbarðseyri eftir matinn og tækjum myndir í myrkrinu. Það fannst mér hin ágætasta uppástunga og við drifum okkur af stað. Og viti menn - pirringur og leiði breyttist fljótt í núvitund og slökun. Það var frost úti og blankalogn, sjórinn gutlaði upp við fjörusteinana og vitinn lýsti taktfast upp umhverfið. Dásamlegt alveg hreint!
P.S. Þetta er bloggfærsla 7/100 í bloggáskorun ársins 2021
þriðjudagur, 5. janúar 2021
Það gekk eins og í sögu að keyra suður
en ég tók því reyndar mjög rólega - fór Svínavatnsleið og stoppaði svo lengi við Grábrók í Borgarfirði. Gekk þar upp í dásamlegu veðri og fékk svona "Palli var einn í heiminum" tilfinningu. Upplifði algjöra slökun og friðsæld. Þegar ég var á niðurleið kom þokuslæða og skömmu síðar fór að snjóa aðeins en það hætti svo fljótlega. Nú ligg ég eins og skata uppi í sófa og bíð eftir því að klukkan verði nógu margt til að það sé löglegur háttatími. Ég hef nefnilega sofið svo illa síðustu tvær nætur. Hlýt að sofa eins og steinn í nótt :)
P.S. Bloggfærsla 5/100 á árinu 2021
mánudagur, 4. janúar 2021
Mamma er orðin 94ra ára
og farin að tapa býsna miklu af sinni líkamlegu og andlegu færni. Það hefur hallað nokkuð hratt undan fæti hjá henni þetta covid ár, þó ekki viti ég hvort það er samhengi milli skorts á félagslegri örvun og heilabilun.
Ef ég á að vera hreinskilin þá er þetta búið að vera erfitt ár fyrir okkur aðstandendur mömmu. Lengi var lokað fyrir heimsóknir en svo mátti heimsækja og þá einn aðili í einu og helst alltaf sá sami. Anna systir lét sig hafa það að koma frá Noregi í sumar og bíða í 14 daga eftir því að mega heimsækja mömmu, en þannig voru reglurnar þá. Svo hún stoppaði á Íslandi í ca 3 vikur, bara til að geta heimsótt mömmu í örfá skipti þessa síðustu viku. Það fannst mér vel gert hjá henni.
Ég náði að heimsækja mömmu í janúar og svo í febrúar þegar við komum heim frá Dubai en svo var öllu skellt í lás og ég komst ekki í heimsókn fyrr en í maí. Einnig heimsótti ég hana í júní, júlí og ágúst en í september fékk ég einhverja leiðinda pesti sem ég ætlaði aldrei að losna við. Ekki má koma í heimsókn á hjúkrunarheimili ef maður er veikur, svo það var ekki fyrr en í nóvember sem ég komst næst.
Þannig að nú finnst mér kominn tími á heimsókn - og ætla að keyra suður á morgun. Ég verð reyndar á jeppanum en ekki Volvonum, af því það er brotinn einhver gormur (sem hefur með dempara að gera) í honum. Ég hef sennilega ekki keyrt jeppann milli landshluta síðan við keyptum Volvoinn, svo það verða smá viðbrigði. Hahaha ég er orðin svo góðu vön ;) en jeppinn er alveg fínn sko.
P.S. Þetta er færsla 4/100 í bloggáskorun ársins
sunnudagur, 3. janúar 2021
Að eltast við birtuna í skammdeginu
er nokkuð sem ég hef lagt mikið uppúr síðan ég áttaði mig á mikilvægi þess fyrir mína andlegu líðan. Og þar sem ég hef stjórnað tíma mínum sjálf í bráðum sjö ár núna, þá vel ég að fara út að ganga á þeim tíma dagsins sem birtan er sem mest. Í morgun var ég samt í bráðri þörf fyrir súrefni og við Valur drifum okkur út á Gáseyri áður en birti. Það leið hins vegar ekki á löngu þar til bleikur himinn í norðri benti til þess að nú væri sólin farin að mjaka sér ofar á himninum í suðri.
Þar sem ég hef ekki stundað vetraríþróttir í mörg ár og myrkrið gerði mig þunga og þreytta, leiddist mér veturinn. En eftir að ljósmyndun varð hluti af lífi mínu þá fór ég að sjá og átta mig betur á þessum dásamlegu bleiku og bláu litatónum sem fylgja sólarupprás og sólsetri - og nú hef ég allt annað viðhorf til vetrarins. Er það ekki magnað hvernig við getum haft ólíkt viðhorf til sama hlutarins, allt eftir því hvernig við veljum að horfa á hann?
P.S. Bloggfærsla 3/100 á árinu
miðvikudagur, 8. janúar 2020
Að leyfa sér að dreyma
þriðjudagur, 3. september 2019
Lystigarðurinn eða sófinn?
Þegar ég vaknaði í morgun var vinkona mín vefjagigtin mætt á svæðið, tvíefld. Ekki að hún hafi svo sem farið neitt, hún er bara mis öflug, svona eins og fellibylir hafa misjafnan styrk. Ég fór samt í morgunsundið og sá ekki eftir því, enda dásemdarsólskin úti. Þurfti reyndar að skafa bílrúðuna svo það hefur greinilega fryst í nótt.
Þegar ég kom heim úr sundinu og var búin að borða morgunmat þá var sófinn farinn að kalla ansi hátt á mig. EN - það er ekki á hverjum degi sem sólin skín og ég veit fátt verra en liggja í gigtarkasti í sófanum í fallegu veðri. Þannig að ég tók mig saman í andlitinu, setti makrólinsu á myndavélina og ók í Lystigarðinn.
Fékk reyndar símtal frá vinkonu minni akkúrat þegar ég var að leggja bílnum og spjallaði aðeins við hana áður en ég fór í garðinn. Fann að formið var nú ekkert æðislegt og splæsti á mig kaffibolla sem ég drakk úti í sólinni. Rölti svo um garðinn í leit að myndefni.
Mér finnst skemmtilegast að eltast við birtuna, þ.e.a.s. finna sólargeisla sem ná að brjóta sér leið milli greina og trjáa og skína nánast lárétt á plöntur og blóm. Svo gengur náttúrulega misvel að fanga fegurðina. En ég gleymi mér við þessa iðju og dvel í núvitund á meðan og það er bara dásamlegt :)
miðvikudagur, 8. ágúst 2018
Stöðuuppfærsla
föstudagur, 16. október 2015
Bara spræk :)
Já batnandi fólki er best að lifa. Mér fannst kominn tími til að skrifa nýjan pistil, þar sem sá síðasti var frekar á neikvæðu nótunum. Auðvitað gafst ég ekkert upp í leikfiminni, en vá hvað fyrstu vikurnar voru erfiðar. Sjúkraþjálfarinn (önnur þeirra sem eru með leikfimina) sagði að það tæki taugakerfið 4-6 vikur að jafna sig á nýju áreiti, og það stóð heima. Ég ákvað að mæta samviskusamlega í hvern einasta tíma (x3 í viku) og eftir ca. 4-5 vikur fór ég að finna heilmikinn mun á mér til hins betra. Mikið sem er gaman þegar eitthvað gengur vel hjá manni :) Mér finnst þessi leikfimi líka henta mér ágætlega og það eru fínar konur þarna allt í kringum mig, bæði þjálfararnir og konurnar í leikfiminni. Sumar þekkti ég fyrir en það voru líka mörg ný andlit.
Í byrjun október fórum við Valur í frí til Spánar, með Önnu systur og Kjell-Einari manninum hennar. Við leigðum okkur hús í litlu þorpi sem heitir Frigiliana, en það er í ca. 45 mín. akstursfjarlægð frá Malaga. Hitastigið var á bilinu 21-25 gráður og það hentaði mér afskaplega vel. Ég var svo mjúk og góð í skrokknum og átti ekki í neinum erfiðleikum með að ganga upp og niður brattar tröppur og stíga, sem mikið var af í þorpinu. Ég efast ekki um að það var leikfiminni að þakka :)
Ég þarf eiginlega að gera sérstaka bloggfærslu um Spánarferðina, en læt hér staðar numið í bili. Leyfi einni mynd af sjálfri mér að fljóta með, bara svona til að sýna hvað Spánn fór vel með mig. Góða helgi gott fólk :)
miðvikudagur, 2. september 2015
Babú - babú - babú ... vælubíllinn er á ferðinni !!
Klukkan er 13:06 á miðvikudegi. Ég er örmagna af þreytu. Hef samt ekki gert neitt í dag sem orsakað gæti þessa þreytu. Að vísu byrjaði ég í nýrri leikfimi í fyrradag og þetta eru hugsnalega síðbúin eftirköst.En ég sef líka fremur illa þessa dagana. Á erfitt með að sofna og vakna oft um miðja nótt og á í erfiðleikum með að sofna aftur. Í gærkvöldi var ég þreytt þegar ég fór í háttinn en samt eitthvað upprifin. Eftir að legið vakandi dágóða stund sá ég fram á að geta ekki sofnað af sjálfsdáðum og tók 1/3 af svefntöflu. Sofnaði uppúr miðnætti. Vaknaði í tvígang og fór á klósettið, án þess að líta á klukkuna. Glaðvaknaði svo kl. fimm. Var samt dauðþreytt og langaði alls ekki að fara á fætur klukkan fimm að morgni. Velti mér og bylti dágóða stund, setti svo hugleiðslutónlist í eyrun og hef sennilega verið sofnuð aftur um sexleytið.Vissi ekkert hvað klukkan var þegar ég vaknaði, fannst ég vera nýsofnuð en þegar ég leit á klukkuna var hún rétt rúmlega níu.Úff það hafði alls ekki verið meiningin að sofa svona lengi. Ég var búin að missa af morgunsundinu (eða þannig upplifði ég það að minnsta kosti) en sólin skein úti og þá fannst mér að ég yrði að fara út fyrir hússins dyr sem allra fyrst. Þannig að ég fékk mér bara smá sítrónuvatn og dreif mig út í bíl og tók myndavélina með. Hélt kannski að það væri alveg logn og þá er Pollurinn oft svo myndvænn, en það var samt ekki 100% logn þó það væri frekar lygnt. Ég ók út að Krossanesi, á hæðina þar sem hægt er að sjá út fjörðinn og Kaldbak. Þar smellti ég af nokkrum myndum og naut góða veðursins.Fann að ég var nú ekki alveg eins og ég á að mér að vera, en datt samt í hug að fara að Eyjafjarðarbrú og athuga hvort ég fyndi eitthvað myndefni þar í grennd. Stoppaði bílinn í tví- eða þrígang og tók einhverjar myndir en var nú farið að líða verulega illa. Þung í skrokknum og þreytt og syfjuð.Þannig að ég dreif mig heim og fékk mér staðbetri morgunmat, hélt að það myndi kannski bjarga einhverju, en ónei það var ekki svo gott. Var bara algjörlega máttlaus í líkamanum og ótrúlega þung og þreytt öll. Það eina sem ég gat gert var að lesa, svo ég las bæði dagblöðin og hékk aðeins á netinu, áður en ég lagðist inn í sófa þar sem ég steinsofnaði. Hef líklega sofið hálftíma, klukkutíma, og vaknaði í síst betra standi.Í örvæntingarfullri tilraun til að líða betur fékk ég mér te og 85% dökkt súkkulaði en þegar það dugði ekki til þá greip ég kexpakka (sem var keyptur í sumar þegar Valur fór í veiði) og gúffaði í mig þrjár kexkökur. Í nokkrar mínútur leið mér eins og ég væri að fá í mig einhvern lífsneista en þá gerðist tvennt. Fyrst fékk ég hraðari hjartslátt og í kjölfarið heiftarlegt samviskubit yfir því að hafa dottið í glúten- og sykur-sukk því ég byrjaði nefnilega í fyrradag í átaki með að taka akkúrat þetta tvennt út úr fæðinu. Þannig að nú bættist samviskubit ofan á þreytu og aðra vanlíðan. Frábært!Úti skín sólin og ég hef mig ekki í að fara út í góða veðrið. Það eykur svo enn á vanlíðanina því þegar maður býr á Íslandi þá er nánast skylda að „nýta“ sólina þegar hún loks lætur sjá sig.Arg! Þetta er nú meiri vitleysan. Til að kóróna ástandið er svo leikfimi í dag kl. 16:15 og ég er ekki að sjá hvernig ég á að meika það dæmi. Veit samt af gamalli reynslu að ég mun fara og ég mun gera æfingarnar að svo miklu leyti sem ég treysti mér til.Það er þetta sem ég þoli ekki við vefjagigtina, hversu óútreiknanleg hún er. Eða kannski hefði ég getað séð þetta þreytukast fyrir, ég veit það ekki. Í gær var ég bara „pínu lúin“ en fór samt í sund, útréttaði aðeins í bænum, fór í Bónus og svo á fund í gærkvöldi. Borðaði bara hollt allan daginn, fyrir utan hálfa sneið af súkkulaðiköku og smá snakk. Fór út að ganga um tíuleytið í gærkvöldi í dásemdarveðri og leið vel. Þess vegna var alveg extra fúlt að sofa svona illa og vera þetta þreytt í dag.En já það þýðir ekki að væla bara ... nú fer ég og sest út í sólina með bók eða blað :-)
P.S. Kl. 15:30. Ég fór út í sólina og tók með mér möppu sem inniheldur fróðleik um vefjagigt og ýmislegt fleira. Þegar ég blaðaði í möppunni rakst ég á eftirfarandi setningu á norsku:
„Pasientens smerteforståelse og hvilken trusselverdi smerten representerer vil i stor grad bestemme smertens intensitet og varighet. Så lenge den respresenterer en fare eller en trussel for pasienten, vil smerten vedlikeholdes.“
Eða: þeim mun hræddari sem sjúklingurinn er við sársaukann (vefjagigtarverkina, þreytuna) og upplifir hann sem ógn, þeim mun lengur þjáist sjúklingurinn af verkjum. Með því að bregðast við verkjum með áhyggjum og ótta, þá skapast vítahringur. Markmiðið ætti þá væntanlega að vera það að finna aðferðir sem hjálpa manni að slaka á og „afvegaleiða“ hugann þannig að maður sé ekki bara að hafa endalausar áhyggur og magna þær upp.
Ég t.d. VEIT að það er ekki heimsendir þó ég sé þreytt, en samt líður mér þannig og fer að hafa áhyggjur af öllu sem ég get ekki gert vegna þreytunnar. Betra væri fyrir mig að segja: OK ég er svona í dag. Þá verð ég bara að sætta mig við það og reyna að slaka á þar til þetta ástand líður hjá.
föstudagur, 28. ágúst 2015
Eitt stk bloggfærsla „beint af skepnunni“
Eða öllu heldur bara eitthvað blaður af því ég var í þörf fyrir að skrifa. Hljómar ekki beint líklegt til vinsælda - en það hefur nú heldur aldrei verið markmiðið með mínum bloggskrifum.
Það er föstudagseftirmiðdagur. Ég sit í öðrum nýja gula Ikea stólnum okkar og það fer vel um mig. Okkur langaði í smá tilbreytingu í stofuna og eftir að hafa verið með sama sófasettið í 13 ár (sem við keyptum þar að auki notað á sínum tíma) þá ákváðum við að kaupa þessa gulu stóla til að lífga aðeins uppá stofuna.
En þegar stólarnir voru komnir þá fannst okkur þeir engan veginn passa með gömlu sófunum, svo við notuðum tækifærið í einni Reykjavíkurferðinni og þræddum húsgagnaverslanirnar í leit að hinum eina rétta sófa. Hann fundum við í Epal, en það var síðasta verslunin sem við fórum í. Ekki skemmdi fyrir að hann var á 50% afslætti (ég er alltaf svo ánægð þegar ég geri góð kaup) en það var ekki ástæðan fyrir því að við keyptum hann (þó svo að við hefðum sennilega aldrei keypt hann á fullu verði). Nei okkur fannst hann bara fallegur í laginu, fallegur á litinn og þægilegur að sitja í.
Og til gamans kemur hér ljósmynd af herlegheitunum sem ég smellti af á símann til að senda Hrefnu í Köben svo hún gæti séð hvernig þetta lítur út hjá okkur. Uppröðunin er nú að vísu ekki akkúrat svona núna í augnablikinu en það er nú aukaatriði. Það er svo á dagskránni að láta lækka sófaborðið aðeins þar sem nýi sófinn er töluvert lægri en sá gamli.
Annars segi ég bara allt meinhægt. Þetta sumar hefur verið dálítið skrítið á ýmsan hátt. Það er þó jákvætt að við höfum farið þrisvar sinnum í hjólhýsaferðir :-)
Fyrst fórum við í ferð í Dalina með vinafólki, þar sem hluti hópsins var að hjóla á daginn og svo vorum við tvær „skutlur“ sem sáum um að sækja og senda ... eða þannig. Við sóttum hjólarana t.d. á Stykkishólm (frá Laugum í Sælingsdal þar sem við vorum með tjaldbúðir) svo þau þyrftu nú ekki að hjóla báðar leiðir, enda mjög löng leið að hjóla á miserfiðu undirlagi (þvottabretti sums staðar) og í miklum mótvindi á köflum.
Næst fórum við í Mosfellsdalinn þar sem við gistum í sex nætur. Það var blanda af gamni og alvöru því mamma hans Vals var orðin svo veik og lést á meðan við vorum þarna. Við vorum afskaplega þakklát fyrir að geta verið á staðnum þegar svona bar undir. Við notuðum samt líka tímann í annað, s.s. að fara dagsferð út fyrir borgina, auk þess að fara á hin ýmsu söfn og í heimsóknir.
Þriðja ferðin var á Möðrudal á Öræfum, en síðasta bloggfærsla fjallaði einmitt um þá ferð.
Helst hefðum við viljað fara í fleiri hjólhýsaferðir en slæmt veður og heilsuleysi hefur komið í veg fyrir það. En þar fyrir utan, þá fór ég eina stutta ferð suður í byrjun júní og sótti Hrefnu, Egil og Erik til Keflavíkur þegar þau komu heim í sumarfrí og til að vera viðstödd stúdentsveisluna hans Ísaks. Valur hefur farið þrisvar sinnum í veiði. Við fórum líka til Reykjavíkur í jarðarför tengdamömmu og svo fór ég til Köben og var þar í eina viku eftir jarðarförina. Þannig að við höfum verið á töluverðu flakki.
Ég hef stundum farið af stað og verið drulluþreytt og illa upplögð en einhvern veginn þá næ ég að lifa af ferðalögin og njóta þeirra, þó svo ég detti í nýtt þreytu- og gigtarkast við heimkomuna.
Jæja ég held ég segi þetta gott í dag. Njótið helgarinnar :-)
föstudagur, 7. ágúst 2015
Silfurbrúðkaup
Það er eiginlega hálf óraunverulegt (af því tíminn líður svo hratt) en við Valur áttum 25 ára brúðkaupsafmæli sunnudaginn 2. ágúst. Við höfðum ekki verið búin að ákveða hvernig við ætluðum að halda uppá þetta og satt best að segja höfum við ekki verið neitt óskaplega dugleg að halda uppá brúðkaupsafmælin okkar í gegnum tíðina, en nú langaði okkur samt að sýna smá lit og gera eitthvað.
Ég hafði reyndar verið þreytt og tuskuleg vikuna áður en ákvað að láta það ekki á mig fá og þegar Valur kom heim úr ræktinni um hádegisbilið á laugardeginum þá sagði ég honum að við værum að fara austur á Möðrudal á Fjöllum. Ég var búin að hringja og það var nóg af lausum plássum á tjaldstæðinu, svo það var ekki eftir neinu að bíða. Við fórum að bera dót út í hjólhýsið og Valur fór í búðina og keypti í matinn og svo tók hann líka bensín. Við vorum komin af stað um hálf þrjúleytið og það gleymdist ekkert nema ein gúrka og sæt kartafla heima ;-)
Það tekur tvo tíma að keyra frá Akureyri og þarna austur en við stoppuðum reyndar á leiðinni og fengum okkur kaffi og köku á Hótel Laxá í Mývatnssveit, svo við vorum ekki komin austur fyrr en um fimmleytið. Það hittist svo vel á að tjaldstæðið sem við höfðum fyrir tveimur árum síðan var laust, svo við vorum á sama stað, með útsýni beint á Herðubreið. Hrikalega flott staðsetning að mínu mati.
Við komum okkur fyrir og grilluðum svo lax í kvöldmat og borðuðum helling af salati úr garðinum með. Já og smá rauðvínsdreitill fékk að fylgja með. Því miður var ekki nógu hlýtt til að hægt væri að borða úti.
Seinna um kvöldið fórum við svo út og röltum aðeins um svæðið. Þá var sólin svo vingjarnleg að láta sjá sig og ekki var það nú verra. Nokkrar myndir teknar að sjálfsögðu.
Við sofum alltaf svo vel í hjólhýsinu og þessi nótt var engin undantekning. Vöknuðum um hálf níu og borðuðum morgunmat í rólegheitum. Þá var komið að því að ákveða hvernig við vildum verja deginum. Við ákváðum að fara rúnt inneftir, í áttina að Kverkfjöllum.
Áður en við lögðum af stað skelltum við í eina „selfie“ í tilefni dagsins. Við reyndar kunnum ekkert alltof vel að taka sjálfsmyndir á símann, erum bæði vön að snúa honum frekar frá okkur en að okkur þegar við tökum myndir.
Svo tókum við líka mynd af þessu upplýsingaskilti, þar sem sjá má kennileiti, vegi og vöð á þessum slóðum. Ekki eru allar ár brúaðar og það var óvenju mikið í ánum núna af því það voraði svo seint. Snjórinn er jú enn að bráðna þarna uppi á hálendinu.
Enginn snjór sjáanlegur hér að vísu ;-) en Möðrudalsfjallgarður alltaf fallegur.
Við hættum reyndar við að aka alla leið í Kverkfjöll þegar við áttuðum okkur á því hvað leiðin er seinfarin. Ákváðum í staðinn að fara í Herðubreiðarlindir.
Þessi mynd er tekin rétt hjá ánni Kreppu þar sem voru vatnspollar útum allt í hrauninu. Fallegt!
Hér er hins vegar Jökulsá á Fjöllum, myndin er tekin af brúnni yfir hana.
Þarna erum við farin að nálgast Herðubreiðarlindir, á vinstri hönd eru Herðubreiðartögl. Birtan var svo falleg á þessum tímapunkti, því sólin ýmist kom eða fór og skapaði skugga sums staðar á meðan annað var upplýst.
Loks komin í Herðubreiðarlindir. Það tók „aðeins“ þrjá tíma að keyra þangað frá Möðrudal. Tíminn var samt fljótur að líða því það var svo fallegt og fjölbreytt landslag til að horfa á.
Við byrjuðum á að fá okkur nesti, enda orðin svöng. Það eina sem plagaði mig voru mýflugur sem sveimuðu allt í kring. Ég setti eyrnaskjól á eyrun svo þær létu þau í friði (þoli ekki að heyra suðið í kringum eyrun, finnst eins og flugurnar séu á leið þangað inn), og svo datt mér í hug að setja á mig sólgleraugu og þá komust engar flugur í augun á mér. Leið strax betur við þessar varúðarráðstafanir :)
Svo gerðum við aðra tilraun til að taka sjálfsmynd á símann - þetta er allt að koma hjá okkur sko ;-)
Fórum í gönguferð um svæðið og kíktum meðal annars á helli þeirra Höllu og Fjalla Eyvinds.
Og reyndum að endurskapa gamla mynd sem ég tók af Val fyrir mörgum árum síðan á svipuðum stað. Hann er meira að segja í sömu peysunni, hér nýta menn sko fötin sín vel ;-)
Svo var komið að heimleið. Í þetta sinn ókum við vestari leiðina tilbaka en hún er töluvert fljótfarnari. Það tók bara tvo tíma að keyra úr Herðubreiðarlindum og út á þjóðveginn við Mývatnsöræfin, en þá er komið út á veginn rétt hjá Hrossaborgum. Síðan er að vísu 20-30 mín. akstur inn á Möðrudal en á malbiki svo það er þægilegt.
Þegar við komum aftur í hjólhýsið var kaffisopi og síðan slökun í góða stund. En Valur hafði keypt litla flösku af freyðivíni og mér datt í hug að taka hana með út í móa, sem við og gerðum, og þar skáluðum við fyrir 25 árunum. Áttum voða notalega stund saman úti í náttúrunni, það var aðeins farið að kólna en samt nokkuð milt veður og þar sem við sátum heyrðist suðið í lítilli lækjarsprænu og lóa var á vappi þarna rétt hjá. Bara yndislegt!
Skál fyrir 25 árum í hjónabandi :) Í lok nóvember verða svo 30 ár síðan við byrjuðum saman.
Smá tilraun hjá mér ... tók panorama mynd og af því Valur hreyfði sig á meðan ég tók myndina þá endaði hann inni á henni í tvígang. Bara búin að klóna bóndann ;-)
Eftir þennan góða göngutúr fórum við svo að elda matinn. Valur grillaði lambakjöt sem hann hafði marinerað og meðlætið var grillað spergilkál og salat úr garðinum heima.
Svo fórum við aftur út og viðruðum okkur aðeins fyrir nóttina. Þá kom þetta svaka fallega sólsetur og kom það mér alveg á óvart. Ég er svo vön að horfa á sólsetur við sjó að ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að það gæti verið svona fallegt á fjöllum líka.
Daginn eftir pökkuðum við svo saman og ókum heim á leið eftir alveg hreint stórgóða ferð.
miðvikudagur, 27. maí 2015
Gott að vera úti í náttúrunni
mánudagur, 26. janúar 2015
Mataræðis-pælingar
Annað slagið heyri ég sögur af fólki sem greinist með ofnæmi eða óþol fyrir glúteni og þarf að breyta mataræði sínu í kjölfarið. Þar sem ég hef sjálf gengið í gegnum svipað ferli datt mér í hug að setja hér inn smá samantekt á því hvernig þetta hefur gengið hjá mér.
Eins og margir vita þá breytti ég mataræði mínu haustið 2011, í kjölfar ferðar til Noregs þar sem m.a voru teknar blóðprufur sem sýndu óþol gagnvart glúteni, mjólkurvörum og eggjum.
Ég tók þetta föstum tökum og breytti mataræðinu nánast á einni nóttu. Það var ekki alveg einfalt mál, og vissulega óx mér þetta nokkuð í augum í byrjun, ekki síst vegna þess að á sama tíma var ég að prófa að borða samkvæmt High fat Low carb (mikil fita, lítil kolvetni) reglunum. Það flækti málið enn frekar að mega ekki borða egg þar sem þau eru oft notuð sem lyftiefni í glútenlaust brauð og kökur. Fyrstu vikurnar var þetta verulega flókið en svo smátt og smátt fann ég nýjar uppskriftir og nýjar leiðir við að gera hlutina.
Varðandi glútenlausa mataræðið þá ákvað ég strax í upphafi að skipta ekki hveiti út fyrir annað fínmalað mjöl sem væri alveg jafn óhollt uppá blóðsykurinn að gera. Þannig að til að byrja með hætti ég að borða allt brauð og ef það eru t.d. hamborgarar í matinn þá sleppi ég brauðinu og borða bara „allsberan“ hamborgara ásamt beikoni, salati og dásamlega góðri sósu úr kasjúhnetum og spergilkáli. Þegar þau hin borða pasta þá gæti ég í sjálfu sér borðað glútenlaust pasta en ég ákvað að sleppa því bara alveg. Oftast borða ég þá bara salat og soðið grænmeti í staðinn, en einstaka sinnum nenni ég að búa til kúrbíts-spaghetti og það er mjög fínt.
Það hefur verið aðeins meira bras að finna uppskrift að pítsudeigi sem ég er sátt við. Að vísu er hægt að kaupa tilbúna glútenlausa pítsubotna og ég hef stundum gert það, en finnst heimatilbúið alltaf betra. Þessi uppskrift hér, sem gerð er úr kínóa finnst mér sú besta sem ég hef prófað en hef að vísu bara gert hana einu sinni.
Það sem mér fannst kannski erfiðast að passa uppá í sambandi við glútenið, er að það má finna í svo mörgu öðru en kornvörum. Glúten er innihaldsefni í ótrúlegustu tilbúnu matvörum og ef maður er virkilega viðkvæmur fyrir glúteni, þá þarf aldeilis að passa sig og lesa innihaldslýsingar. Allur tilbúinn pakkamatur, súpur, sósur, sósukraftur, lakkrís, meira að segja snyrtivörur geta innihaldið glúten.
Ég saknaði þess að geta ekki borðað neitt með áleggi ofaná (maður er svo ótrúlega fastur í því að borða brauð með áleggi) og datt þá niður á það að baka frækex. Við Valur splæstum í þurrkofn og ég nota hann til að baka kexið en í raun er hægt að nota venjulegan bakaraofn. Í upphafi notaðist ég mikið við uppskrift sem er í bókinni hennar Kollu grasalæknis en núna er ég farin að grauta bara einhverju saman. Inni á vefsíðunni ljomandi.is er uppskrift að hrökkbrauði sem mér líst ágætlega á og hún notar bara venjulegan ofn.
Eftir að hafa borðað frækex sem staðgengil fyrir brauð í rúmt ár, rakst ég á uppskrift að brauði á netinu sem ég prófaði og er enn að baka (ég nota glútenlaust haframjöl, passa það ef þið eruð með glútenóþol). Þessi uppskrift hentar mér mjög vel af því það eru hvorki egg né mjólkurvörur í henni. En þetta lítur út og smakkast eins og brauð ;) Upprunalega er þessi brauðuppskrift komin af bloggi sem heitir My new roots, og það er alveg svakalega flott blogg með alls konar heilsusamlegum uppskriftum og fallegum ljósmyndum, endilega kíkið á það.
Morgunmaturinn var höfuðverkur í upphafi því ég var svo ákveðin í að taka út kolvetni að ég vildi ekki einu sinni borða haframjöl. Ég hafði verið byrjuð að borða egg og beikon í morgunmat (skv. lágkolvetna mataræðinu) þegar ég greindist með eggjaóþolið og til að byrja með þá skipti ég eggjunum út fyrir grænmeti. Steikti t.d. smá hvítkál og gulrætur og borðaði með beikoni. Þetta endist vel og lengi í maganum á mér af því ég passa uppá að steikja grænmetið uppúr kókosolíu og svo er jú fita í beikoninu. Það að fá næga fitu er mjög mikilvægt fyrir mig, minnkar þörfina fyrir sykur og ég er södd lengur. Og svona í „forbifarten“ af því margir þjást ennþá af óhóflegri hræðslu við að borða fitu, þá hef ég síðan haustið 2011 verið að borða nokkuð meiri fitu en nokkurn tímann áður og blóðprufur sem teknar voru af mér núna í haust sýna mjög góð kólesterólgildi.
Á sumrin fæ ég mér mjög oft „búst“ á morgnana. Þá set ég frosin ber (hindber, skógarber, bláber, rifsber t.d.), hörfræolíu, kókosmjólk úr fernu eða möndlumjólk, hampfræ eða baunaprótein og kókosvatn í blandara og blanda þar til mjúkt. Þeir sem eru ekki með mjólkuróþol geta notað skyr eða mjólkurprótein í staðinn fyrir hampfræin/baunapróteinið.
Ég fann líka uppskrift að kínóagraut sem ég borðaði á tímabili og var voða ánægð með hann eftir að ég vandist bragðinu. Núna er ég farin að borða glútenlaust haframjöl og þá fæ ég mér oft hafragraut á morgnana. Geri reyndar mína útgáfu af honum og blanda chiafræjum, hampfræjum, kasjúhnetum, kókosolíu, kanil og bláberjum saman við. Sannkallaður ofurgrautur ;)
Varðandi morgunmat þá höfum við svo ótrúlega sterkar skoðanir á því hvað passar sem morgunmatur en í raun er þetta bara ein af þremur máltíðum dagsins og kornmatur (brauð, grautur, morgunkorn) þarf ekkert endilega að koma þar við sögu. Hér er t.d. hugmynd að 23 tegundum að morgunmat þar sem hefðbundið korn kemur ekki við sögu. Ef fólk er ekki í sérstöku lág-kolvetna-átaki þá er hægt að finna fullt af uppskriftum á netinu að glútenlausu brauði, kökum, kexi og alls konar gúmmelaði.
Ég ákvað að líta jákvæðum augum á þetta með að breyta mataræðinu. Ekki bara hugsa það út frá því sem ég má ekki borða, heldur líta á þetta sem tækifæri til að borða hollan mat, með því að fókusera á það sem ég MÁ borða. Ég áttaði mig líka á því að með því að skoða uppskriftir sem flokkast undir t.d. hráfæði (alls konar girnilegar kökur t.d. og matur líka), grænmetisfæði (vegan), grainfree (ekkert korn), paleo, basískt mataræði ofl. þá gat ég fundið alls konar mat sem ég mátti borða. Lágkolvetna mataræðið er oft með glútenlausar uppskriftir.
Í heildina séð þá hef ég samt ekki verið nógu dugleg að gera eitthvað nýtt og spennandi, það verður að segjast eins og er. Netið er samt endalaus uppspretta hugmynda og síðan ég breytti mataræðinu hafa sprottið upp íslenskar bloggsíður þar sem hægt er að finna góðar uppskriftir. Café Sigrún er náttúrulega algjör snilld því þar er hægt að haka við innihaldsefni sem maður vill ekki nota og fá eingöngu fram uppskriftir sem eru án þeirra. Mér líst vel á ljomandi.is, Heilsumamman.com er líka með glútenlausar (og mjólkurlausar) uppskriftir. Vanilla og lavender, Lifðu til fulls, GulurRauðurGrænnogSalt er með afskaplega girnilegar lágkolvetnauppskriftir sem ég þarf að skoða betur.
Fyrsta árið eða svo var ég mjög hörð á því að fylgja mataræðinu og strax fyrstu mánuðina fann ég verulegan mun á mér. Sérstaklega skánaði ég af alls konar smá kvillum, sem þegar þeir safnast saman verða mjög hvimleiðir. Þetta eru einkenni eins og meltingartruflanir, bjúgur, svimi, stíflaðar nef- og kinnholur, slímmyndun, sljóleiki yfir höfðinu (heilaþoka), eyrnasuð (kemur reyndar ennþá ef ég verð of þreytt) og hjartsláttartruflanir, svo eitthvað sé nefnt. Það er t.d. mikill munur að sjá ljósmynd af mér sem tekin var í desember, eftir að ég hafði fylgt þessu mataræði í ca. 3 mánuði, ég var öll frísklegri að sjá og ekki jafn bólgin, þrútin og líflaus í framan og ég hafði verið.
Valur studdi mig 100% í þessu öllu og skipti það ekki litlu máli því hann sér um eldamennskuna á heimilinu. Það sem snýr mest að honum eru hlutir eins og að nota kókosolíu til að steikja uppúr (í staðinn fyrir smjör eða óhollari olíur), og kókosmjólk í staðinn fyrir kúamjólk/rjóma í súpur og sósur. Hann notar ekki lengur hveiti til að þykkja sósur en notar sósujafnara frá Himneskt. Við notum líka glútenfrían grænmetiskraft frá sama fyrirtæki.
Síðustu tvö árin hef ég hins vegar slappast verulega í þessu öllu saman, því miður. Bæði vegna þess að það er flóknara að ferðast þegar maður er með svona sérþarfir, og svo ég er með sykurfíkn á háu stigi og um leið og ég sleppi mér lausri með bara t.d. eina kexköku eða tertusneið, þá er voðinn vís. Og samhliða sykri í kökum og sælgæti er ansi oft einnig að finna glúten, mjólkurvörur og egg, svo þá er ég að gúffa í mig öllu sem ég á ekki að vera að borða. Arg!
Svo er það þannig að óþol virkar öðruvísi en ofnæmi. Ef ég væri með ofnæmi þá fengi ég tafarlaus viðbrögð við því sem ég er að borða en viðbrögð við mataróþoli koma oft ekki fyrr en 1-2 dögum síðar (eða enn seinna) og þá er erfiðara að tengja orsök og afleiðingu. Að vísu er það samt þannig að sykraðar mjólkurvörur orsaka uppþembu og rop samdægurs, og á tímabili klæjaði mig alltaf eftir að hafa borðað glúten, en ekki lengur. Það eru líka kenningar uppi um að glútenóþol valdi mun fleiri kvillum en bara meltingartengdum, en það er erfiðara að átta sig á tengingunni milli þess að borða glúten og fá höfuðverk, eða verða þunglynd(ur) svo dæmi sé nefnt.
Mig langar mikið að taka mataræðið fastari tökum á ný, því ég efast ekki um að það hefur töluvert að segja fyrir líðan mína. Ég er í heildina séð betri í skrokknum (minni vefjagigtarverkir) en þjáist enn af þreytu og er fljót að ofgera mér þó ég sé í raun „ekki að gera neitt“. Það væri gaman að geta orðið ennþá frískari og náð að byggja upp sterkan líkama. Andlega séð finnst mér ég líka vera stöðugri í skapi þegar ég borða 100% glútenlaust og lítinn sykur. Svo nú er bara að bretta uppá ermar og taka á því!!
fimmtudagur, 11. desember 2014
Hefur skammdegið náð í skottið á mér?
Úff ég er allt í einu orðin svo óskaplega þreytt og þung á mér ... Nenni engu og langar mest að liggja áfram í rúminu á morgnana. Þetta er kunnuglegt ástand og tengist líklega myrkrinu. Ég hef náttúrulega ekki verið nógu dugleg að sitja við dagsbirtulampann eða fara út að ganga þegar bjart er úti. Kosturinn er þó sá að ég veit hvað ég þarf að gera ... svo er bara spurningin um framkvæmdina.
Ég reyni samt yfirleitt að drífa mig í sund um áttaleytið á morgnana, og gerði það í morgun eftir að hafa mokað aðeins af bílaplaninu svo jeppinn kæmist þaðan út. Það var nú reyndar frekar fyndið að vera í sundinu því ég var eina konan í búningsklefa kvenna og þegar ég svo kom út í laug var bara einn karlmaður að synda þar. Einn var í heita pottinum og annar að synda í hinni lauginni. Já og svo sá ég einn sem var að fara þegar ég kom. Þannig að í voru fjórir aðrir en ég í sundi. En það var nú reyndar sérstakt ástand því bærinn hafði verið ófær í nótt og í morgun og skólahald féll niður í grunnskólum. Hins vegar var búið að moka aðalgötur þegar ég fór í sundið um hálf níuleytið, svo ég átti ekki í neinum vandræðum með að komast þangað.
Svo spjallaði ég aðeins við Hrefnu og Erik á Skype en það eru pínulítið fyndin samtöl því hann vill helst ná í tölvuna og skilur auðvitað ekkert í því af hverju hann má það ekki. Í dag leyfði mamma hans honum að koma nær og þá datt stærðar slef-slumma niður á lyklaborðið, hehe ;-)
Á mánudaginn koma þau svo til Íslands í 3ja vikna langt jólafrí. Að vísu munu þau stoppa í tvær nætur fyrir sunnan að heimsækja vini og ættingja áður en þau koma norður. Þannig að 17. des koma þau til Akureyrar og síðan koma Andri og Freyja frá Keflavík 19. des. og þá verður nú aldeilis líf og fjör í Vinaminni.
Eins og sjá má á myndinni hér að ofan var engin skammdegisþreyta í mér þegar ég skrapp til Danmerkur um daginn. Mikið sem ég hlakka til að knúsa þennan litla gaur aftur í næstu viku.
fimmtudagur, 4. desember 2014
Pínulítið týnd
Það er alveg stórmerkilegt að í hvert sinn sem ég ætla að byrja að skrifa hér inn þá fæ ég frestunaráráttu á háu stigi. Núna hafði ég rétt lokið við að skrifa fyrirsögnina og þá fannst mér ég alveg bráðnauðsynlega þurfa að kíkja aðeins í myndvinnsluforritið mitt ... Ég sá að mér um leið og ég var búin að opna það og ákvað að halda áfram að skrifa. Varla liðu samt nema nokkrar sekúndur og þá þurfti ég að kíkja á facebook ... Skil ekki sjálf hvað er í gangi. Það er ekki eins og ég sé að skrifa þetta undir neinni pressu, heldur fyrst og fremst fyrir sjálfa mig. Og þegar ég hef ekki skrifað neitt í langan tíma þá byggist upp þörf hjá mér, svo maður skyldi nú halda að það væri auðveldast í heimi að fullnægja þeirri þörf.
Mergurinn málsins er sá að ég er svolítið týnd þessa dagana. Nú er sá árstími sem ég hef undanfarin 7 ár verið alveg á kafi í vinnu, og yfirleitt óskað þess að hafa ekki svona mikið að gera. Nema hvað, núna þegar ég hef „ekkert“ að gera þá sakna ég þess eiginlega að vera ekki í vinnunni minni í Pottum og prikum. Ég sakna reyndar ekki vinnuálagsins sem var alltof mikið fyrir manneskju með vefjagigt, en ég sakna viðskiptavinanna og samskiptanna við þá á þessum árstíma. Það voru allir að kaupa jólagjafir og þrátt fyrir að desember sé álagstími hjá mörgu fólki þá lá gleði og jákvæðni í loftinu. Við Sunna á fullu að panta vörur (smá stress í gangi að reyna að velja vörur sem myndu ná að seljast og ákveða hve mikið magn átti að panta), og svo var endalaust kapphlaup við að taka vörurnar sem fyrst uppúr kössum og koma þeim fyrir í hillunum (aldrei nóg pláss).
Ef við horfum á björtu hliðarnar þá er ég búin að setja upp jólagardínurnar í eldhúsinu, sennilega þremur vikum fyrr en venjulega. Ég er reyndar ekki byrjuð að baka eða neitt þannig en hef þá að minnsta kosti nægan tíma til þess. Ég get hvílt mig heima þegar ég er í þreytu- og/eða gigtarkasti. Ég er smám saman að styrkjast, þó mér finnist það megi nú alveg gerast hraðar. En t.d. þá hlustaði ég á útvarpið í bílnum alla leiðina milli Reykjavíkur og Akureyrar um daginn og það hefði ég aldrei getað þegar ég var sem verst.
Það er sem sagt að renna betur og betur upp fyrir mér að ég er ekki með vinnu, og svona í framhaldi af því þá skjóta alls kyns hugsanir upp kollinum. Svona eins og HVAÐA starf henti manneskju eins og mér, þ.e.a.s. með þetta lítið starfsþrek. Stundum hef ég velt því fyrir mér að reyna á einhvern hátt að starfa sjálfstætt við að skrifa, en svo geri ég ekkert í því að útfæra það nánar í kollinum á mér. Enda er ég kannski ennþá svolítið í þeim gír að vera að tjasla mér saman eftir margra ára ofþreytu. En samt þá læðist þessi tilfinning að mér, að finnast að ég EIGI nú að vera að gera eitthvað gáfulegt, taka þátt í atvinnulífinu, þéna peninga. Og þegar sú hugsun er komin þá fer mér fljótlega að finnast ég alveg gagnslaus af því ég er „bara heima“.
En já á sama tíma þá er ég sem sagt alls ekki tilbúin til að fara út á vinnumarkaðinn í venjulega vinnu, svo ég verð að læra að lifa með sjálfri mér í þessum nýju kringumstæðum. Og trúa því að ég finni út úr þessu öllu saman þegar rétti tíminn er kominn :-)

















































