Hm, þetta hljómar nú hálf undarlega hjá mér. En fyrir ekki svo löngu síðan var ég að skrifa hér á bloggið um "Simple living" stefnuna og það að fólk gæti hugsanlega lifað betra lífi með því að eiga færri hluti. Það er hægt að leika sér með þetta hugtak á marga vegu og ein leiðin er t.d. að kaupa minna af fötum. Losa sig við föt sem maður notar ekki og kaupa bara ný föt sem ganga með þeim sem maður á fyrir. Áðan rakst ég á myndband sem sýnir viðtal við konu sem notar sömu fötin í þrjá mánuði, en ekki bara það, heldur einskorðar hún sig við að nota bara 33 stykki af fatnaði í þrjá mánuði í einu. Í viðtalinu sýnir hún í fataskápinn sinn og hvernig hægt er að komast af með svona fá fataplögg, sé maður nógu duglegur að velja saman fatnað út frá litum og notagildi. Og svona ef einhver hefur áhuga ... þá er myndbandið hér.
Sýnir færslur með efnisorðinu Einfaldara líf. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Einfaldara líf. Sýna allar færslur
fimmtudagur, 14. febrúar 2013
sunnudagur, 13. janúar 2013
Fyndið!
Ég var jú að skrifa þessa bloggfærslu um einfaldara líf í dag. Núna áðan sá ég svo eftirfarandi setningu í stjörnuspá sporðdrekans fyrir árið 2013:
"Go confidently in the direction of your dreams! Live the life you've imagined. As you simplify your life, the laws of the universe will be simpler." - Henry David ThoreauHaha, ég gat nú ekki annað en hlegið, að minnsta kosti svona innra með mér. En spáin byrjaði sem sagt á þessari tilvitnun, en svo var reyndar löng lesning í viðbót. Ekki þar með sagt að ég trúi yfirhöfuð mikið á stjörnuspár en ef einhvern langar að kíkja á sína eigin spá fyrir árið þá er hérna spá fyrir öll stjörnumerkin en að vísu á ensku.
Einfaldara líf
Ég hef verið að lesa dálítið undanfarið um Simple living, Minimalism, Slow living ofl. Þetta eru ólíkar stefnur sem hafa þó ákveðna sameiginlega þætti, s.s. að lifa einfaldara lífi, eiga minna af veraldlegum hlutum og kaupa ekki nýja nema þig vanti þá (hér er gerður greinarmunur á þörfum og óskum). Fólk sem aðhyllist slíkt minnkar oft við sig húsnæði og í kjölfarið þarf það minna af peningum til að lifa af, sem aftur leiðir til aukins fjárhagslegs öryggis og þess að fólk getur jafnvel minnkað við sig vinnuna. Minni vinna þýðir aukinn frítími sem hægt er að nota á uppbyggilegan hátt t.d. með því að njóta samveru við vini og ættingja, eða stunda áhugamál sín.
Tammy Strobel og Logan Smith eru ung hjón sem bjuggu í stórri íbúð og áttu tvo bíla en náðu varla að láta enda ná saman. Þau búa núna í örlitlu húsi (svipuðu litlu hjólhýsi á íslenskan mælikvarða), eiga ekki bíl og njóta þessa nýja lífsstíls síns. Húsið þeirra er reyndar svo ofboðslega lítið að ég stórefast um að mér gæti liðið vel í þetta litlu rými.
Joshua Becker var að laga til í bílskúrnum á sólríkum sumardegi og búin að bera helling af dóti út á bílaplanið, þegar nágranni hans sagði, að kannski þyrfti hann ekki að eiga allt þetta dót. Þessi setning varð honum umhugsunarefni og í kjölfarið tóku þau hjónin sig til og losuðu sig við helling af dóti. Þau búa að vísu enn í stóru húsi og eiga tvo bíla en eru hætt að "safna" dauðum hlutum sem ekki bæta líf þeirra. Joshua heldur líka úti blogginu Becoming Minimalist þar sem hann skrifar greinar og kemur með góð ráð til þeirra sem vilja taka upp svipaða lifnaðarhætti.
Á netinu er hægt að finna alls konar fleiri bækur, sögur, blogg og vefsíður fólks sem hefur ákveðið að lifa einfaldara lífi. Ég kannski set inn fleiri tengla á þær síður við tækifæri.
Ástæða þess að ég er að velta þessum hlutum fyrir mér er væntanlega sú að við erum orðin þrjú sem búum í risastóru húsi. Á neðri hæð er sjónvarpsherbergi, skrifstofa Vals, tónlistarherbergi, gestaherbergi og baðherbergi. Á efri hæð er þvottahús, baðherbergi, gestasnyrting, eldhús, búr, stofa og fjögur svefnherbergi. Já ég gleymdi að segja frá geymslunni niðri og bílskúrnum. Í þessu plássi öllu er töluvert af alls konar dóti, sem sumt hvert gæti kannski öðlast framhaldslíf annars staðar. Þó hef ég verið nokkuð dugleg við það í gegnum árin að henda og gefa dót/hluti/fatnað sem er ekki lengur í notkun.
Svo kostar hellings pening að reka svona stórt hús. Fyrir utan afborganir af lánum þá eru há fasteignagjöld og töluverður rafmagns- og hitunarkostnaður.
En - þetta er húsið sem ég ólst upp í - og börnin mín eru alin upp í - svo það eru töluverðar tilfinningar tengdar því. Að auki er það vel staðsett í rólegu og góðu hverfi og við erum með fína nágranna. Garðurinn er stór og við erum með útsýni upp að Súlum. Jamm, margir plúsar.
Tilfinningalega séð þá er ég ekki ennþá tilbúin að selja húsið og fara í minna. En það sakar kannski ekki að byrja að losa sig við dót sem ekki er í notkun, svo það verði minna að flytja þegar þar að kemur ;-)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
