þriðjudagur, 9. febrúar 2010

Stolin mynd frá Val


Yoga on ice?, originally uploaded by Guðný Pálína.

Þetta er úti á Gáseyri en þangað fórum við á laugardaginn, þrátt fyrir slappleika frúarinnar, sem var töluverður þennan dag. Ég hélt að ég myndi kannski hressast við að vera úti í súrefninu en það virkaði ekki í þetta skiptið. Samt alltaf gott að vera úti.

Á sunnudagsmorguninn hittumst við gömlu skátasysturnar í annað sinn í vetur. Í þetta skiptið náði Rósa sem betur fer að vera með okkur, enda var hennar sárt saknað síðast þegar hún var veðurteppt í höfuðborginni. Við vorum hér heima hjá mér og hver og ein tók með eitthvað smávegis á morgunverðar/hádegisverðarborðið.

Að öðru leyti er lítið að frétta. Ég hef verið löt að fara í sund á morgnana það sem af er ári og eftir því hefur verið tekið. En ég hef aðeins farið í ræktina í staðinn. Það er ágætt að breyta aðeins til.

Jú eitt er að frétta. Ég er komin með forláta rafmagns-hitateppi í rúmið mitt, nokkuð sem er algjör lúxus, svo ekki sé meira sagt. Hitapokinn sem ég hef verið með til fóta lagði upp laupana og þegar ég fór á stúfana til að kaupa nýjan poka, sá ég að hægt var að kaupa heilt teppi fyrir tvöfalda þá upphæð sem nýr poki kostaði. Þannig að ég skellti mér á teppið, því mér er jú ekki bara kalt á tánum þegar ég fer í háttinn. Við höfum gluggann yfirleitt opinn og það þýðir bara eitt þegar það er frost úti. Að rúmið verður ískalt. Og þar sem mér er nú yfirleitt alltaf kalt þá er ekkert sérlega notalegt að fara uppí ískalt rúm. En það verður nú ekki aldeilis vandamál hér eftir :)

fimmtudagur, 4. febrúar 2010

Góður dagur í gær

Já, þetta var ósköp ljúfur frídagur hjá mér í gær. Ég fór sem sagt í ræktina eins og fram hefur komið og var svo aðeins hér heima í tölvu og eitthvað að dútla. Undir hádegið ætlaði ég í bæinn og var komin með verkefnislista í hendurnar og á leiðinni út, þegar ég sá að sólin var að reyna að brjótast í gegnum skýin í suðri. Þannig að ég fór aftur inn og greip myndavélina mína og var að taka myndir fram til hálf tvö, en þá þurfti ég að keyra þá Ísak og Jón Stefán út í Síðuskóla þar sem þeir eru í valfagi. Sem betur fer hringdi Sunna í mig og minnti mig á það, því ég var komin alveg í eigin heim í myndatökunni.

Eftir að þeir voru komnir á sinn stað fór ég svo loks í bæinn. Þar keypti ég íþróttabol á 50% afslætti og fór svo á kaffihús. Fékk mér kaffi og einhverja hollustu-smáköku og sat og fletti tímaritum í dágóða stund og bara naut þess að slappa af. Sá meðal annars uppskrift að súpu sem mér datt í hug að væri tilvalið að hafa í kvöldmatinn. Það hittist reyndar þannig á að uppskriftin var í bók eftir Rósu Guðbjartsdóttur og höfðum við verið að spá í að kaupa þá bók þar sem hún er núna á helmings afslætti, sem ég og gerði. Fór svo í aðeins fleiri búðir en var orðin lúin og dreif mig fljótt heim. Það er að segja, ég ætlaði heim en byrjaði á því að fara í Hrísalund og kaupa gúllas og ákveðið krydd í súpuna. Sótti svo Val í vinnuna og var þá loks komin heim, um hálf fimm leytið.

Þá hvíldi ég mig aðeins en fór svo fljótlega að elda því súpan átti að sjóða í klukkutíma. Þegar hún var komin vel á vel og mallaði ljúflega í pottinum datt mér í hug að baka líka brauð. Fór í tölvuna og fann uppskrift að speltbrauði sem afar fljótlegt er að henda í form og þarf ekkert að lyfta sér. Þannig að ég var nú bara nokkuð dugleg fannst mér. Og það sem var enn betra, allir borðuðu af bestu lyst.

Eftir kvöldmat slappaði ég nú bara aðeins af en náði þó að þvo eina þvottavél og hengja upp. Ætlaði svo snemma í háttinn en gat ekki sofnað, sennilega af því ég var orðin of þreytt. En jú jú, ætli ég hafi samt ekki verið sofnuð í kringum miðnættið þannig að þetta var nú ekkert til að tala um.

Í dag er ég svo eins og valtað hafi verið yfir mig. Sérstaklega eru það vöðvafestur hér og þar sem eru bólgnar og í kringum rass og mjaðmir er ástandið mjög slæmt. Á erfitt með að beygja mig niður (gruna ákveðna æfingu í ræktinni um að eiga sök á því) og hleyp nú ekkert áfram sko. En ég á ekki að mæta í vinnu fyrr en klukkan tvö, þannig að vonandi hef ég náð að safna mér eitthvað saman fyrir þann tíma :-)

miðvikudagur, 3. febrúar 2010

Dugleg stelpa

Jæja, þá er mín búin að fara í ræktina í dag :) Sem er mjög ánægjulegt því eiginlega hafði ég ætlað að fara í gærmorgun, en lagði mig því miður aftur þegar Ísak var farinn í skólann og svaf til hálf tólf! Eða nærri því... Og þá átti ég eftir að borða, laga til í eldhúsinu og fara í sturtu, áður en ég fór að vinna kl. tvö. En ég gekk nú reyndar bæði í vinnuna og heim í gær, þannig að eitthvað hreyfði ég mig í gær.

Ég fór í Þrekhöllina í morgun, það er nýi staðurinn við hliðina á sundlauginni. Mér finnst ósköp heimlislegt að ganga á hlaupabrettinu og horfa yfir sundlaugina. Svo er bjartara þar inni heldur en í Átaki, eða það finnst mér að minnsta kosti. Og fólkið er meira að spjalla saman, sem ég kann vel við. Mér fannst það galli í Átaki hvað allir voru voðalega alvarlegir eitthvað í æfingasalnum - en ég fór nú ekki oft og gæti bara hafa hitt þannig á. Ég er með kort sem gildir á báða staðina, þannig að ætli ég fari ekki bara til skiptis, eða eitthvað, það kemur bara í ljós.

Í dag er ég í fríi. Sem er lúxus, ég veit það, en annan hvern miðvikudag er ég í fríi og það er bara ósköp ljúft. Nú er bara spurningin í hvað ég á að nota þennan frítíma. Þarf nú reyndar að byrja á því að fá mér að borða og svo ætla ég að prjóna eitthvað. Spurning að kíkja líka á bókasafnið. Já og svo er það tiltektin endalausa og þvotturinn. Ætli væri ekki líka þjóðráð að reyna að hitta einhverjar vinkonur (í eintölu eða fleirtölu). Hafið það gott í dag.