fimmtudagur, 9. september 2004

Trúi engu í DV

Stundum er ótrúlega gaman að hlutsta á annað fólk rabba saman. Vera bara áheyrandi án þess að taka þátt í samræðunum. Ég var í leikfimi í morgun og eins og alltaf fór ég að teygja á eftir. Dýnurnar eru í sama sal og upphitunarhjólin en þar er líka sjónvarp. Eldri kona og yngri maður voru að hjóla og höfðu lítið talað saman þegar farið var að fjalla um breytingarnar á Ruth Reginalds í Íslandi í býtið. Meðal annars voru sýndar myndir af Ruth í líkamsrækt. Nema hvað, þá fer sú gamla að tala um það hvað sé nú strax orðinn mikill munur á henni Ruth en sá yngri var greinilega ekki alveg tilbúinn að skrifa undir það. "Já, finnst þér það?" spurði hann með ískaldri kurteisi en tónninn í röddinni ljóstraði því upp að hann var greinilega ekki hrifinn af þessu Ruthar-dæmi. Gamla tók ekkert eftir því en hélt áfram að mala og vitnaði í DV máli sínu til stuðnings. Þá sagði hann "Ég trúi engu sem kemur í DV, ekki einu sinni dagsetningunni". Þar með lauk þessum samræðum.
Það væri að bera í bakkafullan lækinn að skrifa meira um Ruth og hennar "fegrunaraðgerðir" en hvað DV snertir þá gæti ég ekki verið meira sammála stráknum í ræktinni. Þetta er þvílíka sorablaðið og það hvarflar ekki að mér að kaupa það.

1 ummæli:

Halur Húfubólguson sagði...

Efast um að þeir kunni á dagatal; kannski á klukkuna, en skiptir ekki máli að vetri til, þar sem þeir sjá sennilega mun á nóttu og degi! Ekki á réttu og röngu.