Sjáið alla smáfuglana uppi á þaki á húsinu :-)
sunnudagur, 23. febrúar 2014
laugardagur, 22. febrúar 2014
Hvar er „kveikja“ takkinn?
Hann er týndur, svo mikið er víst. Mér líður eins og það sé búið að slökkva ljósin hjá mér - en samt ekki. Einhver týra er þarna einhvers staðar. Málið er bara að ég er svo lúin, löt og pínu leið eitthvað. Og nei, það var ekki viljandi sem það komu þrjú lýsingarorð í röð sem byrja á bókstafnum L. Það var hins vegar viljandi að ég setti orðið „pínu“ inn á milli, bæði til að brjóta upp þessi þrjú L, en líka til að fólk færi ekki að halda að ég væri dottin í þunglyndiskast. Sem ég er ekki. Er bara flöt.
Kannski er ég of mikið að reyna að bæla niður neikvæðar tilfinningar í tengslum við allt sem er að gerast í lífi mínu þessa dagana. Ég las í bók eftir Brené Brown að það er ekki hægt að blokkera út einungis neikvæðar tilfinningar. Um leið og maður bælir niður tilfinningar sem maður vill ekki horfast í augu við, þá lokar maður á sama tíma á jákvæðu tilfinningarnar. Og missir getuna til að upplifa tilfinningar eins og gleði og ánægju. Kannski það sé ástæðan fyrir því að mér finnst ég vera svona flöt?
Þannig að ef ég reyni nú að horfast í augu við það sem er að angra mig, þá er það meðal annars þetta:
- Það sem átti að verða mín leið til að skila loks einhverju framlagi til heimilisins (Pottar og prik) fór á allt annan veg.
- Ég var ekki að höndla að vera verslunareigandi með vefjagigt. Ég lenti í algjörri klemmu, gat ekki tekið það tillit til sjálfrar mín sem ég hefði þurft að gera af því við höfðum ekki efni á að ráða starfsfólk í staðinn fyrir mig. Þannig að mig langaði að losna úr þessari klemmu og nú þegar ég er laus úr henni þá er ég með samviskubit yfir því að hafa langað að losna.
- Núna þarf ég að finna mér nýjan starfsvettvang og það skelfir mig. Ekki séns að ég gæti farið í 100% „venjulega“ vinnu einhvers staðar en þá þarf ég líka að koma með einhverja aðra lausn.
- Upp á síðkastið hugsaði ég sem svo að ef ég myndi hætta með Potta og prik þá skyldi ég fara að sinna skrifum (á einhvern hátt). En ég veit ekki hvernig ég á að fara að því að hafa skriftir sem launaða atvinnu. Fyrir utan þá staðreynd að mér er eiginlega lífsnauðsynlegt að eiga samskipti við fólk og ef ég sit bara ein heima að skrifa þá hitti ég ekki marga aðra.
OK bjartsýnin sem sagt alveg að drepa frúna ... eða þannig. Reyndar verð ég að viðurkenna að sjálfsævisögulega skáldsagan sem ég er að lesa hjálpar ekki til í þeim efnum. Það er að segja, höfundurinn hressist jú smám saman og lagast af síþreytunni, en hún er frekar melankólísk og ég lifi mig alltof mikið inn í söguna. Var einmitt að segja við Val í dag að ég verð eiginlega að drífa mig að klára þessa blessaða bók svo ég komist út úr þessu hugarástandi.
En svona til að enda þennan pistil á jákvæðari nótum þá er ég afskaplega þakklát fyrir það hvað við Sunna áttum gott samstarf. Okkur gekk mjög vel að vinna saman og ég minnist þess ekki að okkur hafi orðið sundurorða þau 7,5 ár sem samvinnan varði. Eins hafði ég mjög gaman af því að eiga samskipti við fólk í tengslum við vinnuna, viðskiptavini, birgja og aðra, og öðlaðist meiri færni í mannlegum samskiptum (vona ég, hehe). Og mér dytti áreiðanlega eitthvað fleira jákvætt í hug ef mér tækist að kveikja aðeins fleiri ljós inni í höfðinu á mér ;-)
En af því ég var að minnast á Brené Brown, þá er hér tengill á áhugaverðan fyrirlestur með henni á Ted.com.
föstudagur, 21. febrúar 2014
Konan í kúlunni
Mér líður eiginlega svolítið eins og ég sé inni í kúlu þessa dagana. Eins og ég sé þátttakandi í lífinu en samt ekki. Frekar fyndið eiginlega. Líklega er ástæðan sú hvað ég hef verið mikið ein með sjálfri mér síðustu vikuna. En samt hef ég alveg verið að hitta fólk, bara ekki eins mikið eins og kona sem vinnur í verslun. Ég hef líka verið að lesa mjög mikið og þá hverfur maður svolítið inn í sinn eigin heim.Í fyrradag (eða var það í gær?) fór ég á bókasafnið og sótti nýja áfyllingu af bókum og tímaritum. Tók nokkur Hús&Híbýli blöð, nokkur Alt for damerne, matreiðslubók með Yesmine Olsson og svo eina norska skáldsögu. Ég hafði aldrei heyrt um höfundinn áður en opnaði bókina af handahófi og sá strax að þetta var texti sem náði að grípa mig. Bókin heitir Monstermenneske og er eftir Kjersti Annesdatter Skomsvold. Ég hafði ekki lesið margar blaðsíður þegar ég áttaði mig á því að aðalsöguhetja bókarinnar væri líklega með það sem á íslensku kallast alltof einfölduðu nafni: síþreyta. Í stað þess að lesa áfram fór ég í tölvuna og gúgglaði nafn höfundarins og komst að því að þetta var hárrétt hjá mér. Þegar ég hélt svo áfram með bókina kom það fram tveimur blaðsíðum síðar. Hehe fröken Óþolinmóð lætur ekki að sér hæða ;-)
Mér finnst þetta virkilega góð bók og nýt þess að lesa hana. En á sama tíma er það erfitt. Því þegar ég hef verið sem verst af minni vefjagigt/síþreytu, þá þekki ég þessa tilfinningu of vel sem höfundurinn miðlar svo vel í bókinni. Vonleysið um að ástandið muni nokkurn tímann lagast. Kærastinn hennar hafði alltaf vonað að henni myndi batna og reyndi að vera sterkur fyrir þau bæði, en svo kom að því að hann missti vonina og hætti með henni. Gat þetta ekki lengur. Það er ábyggilega ekki auðveldara að vera aðstandandi heldur en sjúklingur í svona tilfellum. Báðir aðilar þjást á sinn hátt.
Góðu fréttirnar eru þær að mitt í allri þjáningunni þá fór Kjersti að dreyma um að verða rithöfundur. Að skrifa bók. Og smátt og smátt fór henni að líða betur, andlega og líkamlega. Ég er reyndar bara komin á blaðsíðu 175 af 580, svo ég hef nóg að lesa ennþá, sem betur fer. Er að reyna að gleypa þetta ekki í mig á sama hraða og ég les venjulega.
Annars er ég sem sagt ennþá aðallega í því að hvíla mig. Fór samt í sund í morgun, í fyrsta sinn síðan á laugardaginn síðasta þegar gigtarkastið var byrjað og sú sundferð var jú algjörlega ónýt. Gekk mun betur í morgun.
Og til að komast aðeins út úr kúlunni sem ég upplifði mig inni í, þá fór ég í Eymundsson í hádeginu, til að vera innan um annað fólk í smá stund. Mér leið samt eins og inni í kúlu þar niður frá. En akkúrat núna er ég búin að ná tengingu við sjálfa mig og umheiminn. Sjáið bara hvað það gerir manni gott að blogga ;-)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

