miðvikudagur, 16. nóvember 2011

Ég rakst á þessa skemmtilegu mynd

þegar ég var að fara í gegnum gamlar myndir. Hér má sjá Val vera að búa til spaghetti, en heimagert pasta er náttúrulega ekkert líkt þessu sem keypt er í búðum, heldur miklu betra. Því miður er pasta dottið út af matarlistanum mínum og þegar aðrir fjölskyldumeðlimir borða pasta þá borða ég niður-rifinn kúrbít. Sem er í góðu lagi. En já þessi mynd hefur greinilega verið tekin um jólaleytið m.v. rauðu gardínurnar ;-)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég fékk einu sinni heimalagaða pastað ykkar og það var allveg sérlega gott.
Kv
Sunna

Guðný Pálína sagði...

Já ég man eftir því, held að humar og pasta hafi verið á matseðlinum :)