Já hér kemur sem sagt uppskrift að majonesi... Það er frekar fyndið að vera á mataræði sem gengur út á að innbyrða sem mesta fitu, og mikil breyting frá því að innbyrða sem mest af kolvetnum...
Ég er í tvígang búin að gera þetta majones, af því það átti að vera majones í uppskriftinni sem ég var að fylgja, en ekkert majones til á heimilinu. Þessi kemur úr bók sem fylgdi blandaranum okkar, og mér finnst hún fín. Hins vegar mæli ég ekki með að nota lífrænu ólífuolíuna frá Sollu, því hún er svo bragðsterk/beisk.
1 stórt egg við stofuhita
1 msk. ferskur sítrónusafi
1 tsk. dijonsinnep
1/8 tsk salt
1/8 tsk pipar
1 bolli ólífuolía
Setjið allt nema ólífuolíuna í blandarann og látið ganga í 10-15 sek. Hellið þá ólífuolíunni smátt og smátt saman við, þar til massinn þykknar. Kælið í 30 mín.
2 ummæli:
Ég hélt að það væri miklu meira mál að búa til majones. Maður freistast kannski til að prófa það einhvern tíma.
Valur var nú frekar hissa á því að ég væri að birta uppskrift að majónesi á netinu... En þetta er sem sagt bara hugsað svo ég geti fundið hana aftur í flýti (með því að smella á "labelinn" mataræði hér á blogginu. Og já ég er sammála, ég hélt líka að þetta væri miklu meira mál.
Skrifa ummæli