fimmtudagur, 10. maí 2012

ÁLFkonur verða með ljósmyndasýningu í sumar


Sem er bara skemmtilegt :) Þessi sýning verður í Lystigarðinum ( ég held að ég hljóti að mega segja frá því hér). Hins vegar getur það verið smá púsluspil að velja mynd á svona samsýningu. Ég eyddi dágóðum tíma í gær í að fara í gegnum gamlar myndir, auk þess sem ég hef tekið nokkrar nýjar að undanförnu. Í gær datt ég niður á þessa mynd sem ég tók í Lystigarðinum sumarið 2010.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Finnst þú alltaf taka flottar myndir, en er alveg sérstaklega hrifin af blómamyndunum þínum. Kveðja, Þórdís.

Guðný Pálína sagði...

Takk Þórdís :) Mér finnst líka sérlega gaman að taka blómamyndir :)