Ég er að vinna á morgun til kl. 14 og svo þurfum við að mæta í Lystigarðinn um þrjúleytið til að undirbúa opnunina. Þetta verður langur dagur hjá mér, því til að kóróna þetta, þá er partur af okkur ÁLFkonum líka með í annarri stórri samsýningu, Textílbombunni. Sú sýning verður sett upp annað kvöld og mun ábyggilega taka tímann sinn að setja upp öll verkin, og má búast við að það standi fram á nótt. Ef satt skal segja kvíði ég morgundeginum aðeins og vona að ég nái að standa uppá annan endann allan þennan tíma.
Textílbombu-verkefnið átti að vera litríkt, svo ég tók mynd sem ég átti og breytti henni til að gera hana að litaBOMBU. Myndir þeirra hinna voru unnar á svipaðan hátt. Síðan eru 5 og 5 myndir settar á fána og þeir hengdir á ljósastaura efst í gilinu. Verður nú pínu spennandi að sjá hvernig þetta kemur út allt saman, því það er óhætt að segja að þetta hafi verið fremur erfið fæðing hjá okkur. En hér má sjá upprunalegu myndina mína -
- og svo endanlegu útgáfuna, þegar búið var að ýkja litina alveg í topp. Ég er ekki vön að vinna myndir svona mikið, en gaman að leika sér aðeins í tengslum við þetta ákveðna tilefni.
2 ummæli:
Sýningin er ykkur til sóma og skaðar eigi að setja hana upp á fallegasta staðnum í bænum.
HH
Takk takk Halur minn kær :)
Skrifa ummæli