sunnudagur, 13. júní 2010

Sól og sumar



My favorite season, originally uploaded by Guðný Pálína.
Já það er ekki hægt að segja annað en við hér norðanlands höfum verið lánsöm með veðrið undanfarið. Heimurinn fær á sig annað yfirbragð þegar veðrið er svona gott og allir verða glaðir og kátir.

Við Valur fórum að kaupa plöntur eitt kvöldið í vikunni og ég kippti myndavélinni með mér. Í þetta skiptið keyptum við spergilkál og nokkrar gerðir af salati. Já og einhver sumarblóm sem frúin ætlar að setja niður, ekki seinna en á morgun. Við ákváðum að versla við einyrkja í stað ríkisverslunarinnar í Blómavali og fórum á Réttarhól á Svalbarðsströnd. Það verður að segjast eins og er að þegar maður (kona) er í verslunarrekstri þá spáir maður meira í svona hluti, eins og að versla við heimafólk til að styrkja fyrirtæki í heimabyggð.

Annars gengur lífið sinn vanagang. Ég er ekki enn búin að finna lit á húsið sem við Valur erum bæði fullkomlega sátt við. Markmiðið er að fara á morgun og kaupa allra síðustu litaprufuna. Nú nenni ég þessu ekki lengur og við verðum bara að mála með einhverjum af þessum þúsund litum (eða svo...) sem við erum búin að prófa.

Stærstu fréttirnar eru þær að Andri setur upp hvíta kollinn þann 17. júní og tveimur dögum síðar ætlum við að halda veislu í Reykjavík fyrir vini og vandamenn. Það er gaman fyrir hann að vera loks að útskrifast, þó nú taki óvissa varðandi framtíðina við. En fæstir vita nú á þessum aldri hvað þeir vilja læra og starfa við í framtíðinni.

Ísak er kominn í sumarfrí frá skólanum, þar sem hann stóð sig að vanda vel, og byrjaður í vinnuskólanum. Hann er nú ekki sérlega glaður með það, enda var ekkert frí í millitíðinni, en það er hollt og gott fyrir þessa krakka að taka aðeins til hendinni.

Hrefna fer í próf í vikunni ef ég man rétt. Það er nóg að gera hjá henni, líklega vinnur hún í Noregi part úr sumri og fer svo til Afríku í haust. Þangað ætla þær tvær vinkonur og vinna á sjúkrahúsi í Kenya. Ég hugsa að það verði mikil lífsreynsla og vonandi góð.

Valur er að fara í veiði á morgun, fyrstu veiði sumarsins. Hann fer í Mývatnssveit og er kominn hugur í hann. Gaman að því :) Annars er sumarfrí okkar allt afar óljóst í ár. Það er að segja, hann er núna í viku fríi en fer svo í frí í fjórar vikur og byrjar um miðjan júlí. Þannig stendur á að líklega fer Kiddi maðurinn hennar Sunnu í frí á sama tíma, og þar af leiðandi eru sumarfríin okkar Sunnu í hálfgerðu uppnámi. Tja ekki nema Andri fari bara í fulla vinnu á einhverju tímabili. En það dugar samt ekki tl því það þarf að vinna helgarnar líka... Æ jæja, þetta hlýtur að leysast allt saman.

Og nú ætla ég að fara að gera tilraun nr. 2 til að fara að sofa...

mánudagur, 31. maí 2010

Reiðhjólaraunir

eða þannig... Þetta eru nú svo sem ekkert ægilegar raunir sem ég á í, miklu frekar bara smá aumingjaskapur í gangi.

Þannig er mál með vexti að ég er í svo slæmu formi að ég hreinlega kemst ekki hjólandi heim úr vinnunni. En mér finnst gaman að hjóla í vinnuna, enda er það niður í móti. Heimleiðin er því miður nánast ein brekka. Ég hef prófað að hjóla mismunandi leiðir, svona í tilraun til að finna þá brekku sem er síst bröttust, en það breytir því ekki að alls staðar er að minnsta kosti ein snörp brekka sem ég hreinlega neyðist til að leiða hjólið upp. Og það finnst mér náttúrulega hin mesta hneisa! En það er eins og stórhveli sé á ferð þegar ég er á ferðinni upp brekkurnar, þvílíkt más og blás sem heyrist. Og mér fannst ég nú bara vera komin með annan fótinn í gröfina eftir að hjóla upp Byggðaveginn á föstudaginn, þrátt fyrir að leiða hjólið smá spotta.  Ég lak niður á stól þegar heim kom og stóð varla í lappirnar það sem eftir lifði kvölds.  Jamm og jæja, ætli þetta komi nú ekki hjá mér. Væri kannski ekki úr vegi að æfa sig aðeins meira á jafnsléttu líka...

Við Valur fórum Eyjafjarðarhringinn (keyrandi, best að taka það fram þar sem sumir hjóla og aðrir hlaupa jafnvel þessa vegalengd) í gærmorgun. Það er gaman að sjá hvernig vorið er að koma og já styttist í sumarið en innst innfrá var nú ansi mikil sina ennþá fannst mér. Og þrátt fyrir að hitamælirinn sýndi 14 gráður fannst mér kalt þegar við settumst út í grasið og fengum okkur nesti.

Hér má sjá mynd úr ferðinni. Valur stoppaði til að taka mynd af einhverju sem greip athygli hans og ég smellti af út um bílgluggann á meðan. Hámark letinnar að nenna ekki einu sinni að standa upp ;-)

sunnudagur, 23. maí 2010

Yndislegur dagur

Já það er þvílík veðurblíða hér í dag. Að vísu ekki sérlega hlýtt, en það er sól og í skjóli fyrir norðanáttinni er alveg steikjandi hiti. Valur er búinn að vera í einu af sínum ofvirknisköstum í dag og ætlar að framkvæma allt, helst ekki seinna en strax. Ég er nú líka búin að vera alveg ágætlega dugleg en auðvitað ekkert á við hann.

Eftir framkvæmdina í kjallarnum er minn maður heldur betur kominn í framkvæmdagír og langar núna til að gera nýjan sólpall vestan við húsið, svo hægt sé að njóta kvöldsólarinnar. Ætli yrði þá ekki að rjúfa trjábeðið sem er við núverandi sólpall, til að gera gangstíg meðfram húsinu, að nýja pallinum. Það á þó alveg eftir að koma í ljós hvort af þessu verður. Einnig er mjög brýnt að mála húsið. Valur var búinn að undirbúa húsið fyrir málningu í fyrra en þá kom tvennt til, annars vegar fundum við ekki lit sem við vorum sátt við og hins vegar var veðrið ekki hliðhollt seinni part sumars þegar meiningin var að mála.

Ég hafði voða gott af ferðinni til Köben þrátt fyrir tafir bæði á utanferð og heimferð. Veðrið var alveg bærilegt þó ekki væri lofthita fyrir að fara og engin væri sólin. Líka var mjög gaman að hitta bæði Hrefnu og Önnu. Já og bara vera í öðru umhverfi en þessu venjulega um stund. Það tók mig reyndar smá tíma að venjast fólksfjöldanum og bílamergðinni á götunum þarna á Nörrebro og fyrsta daginn var ég næstum með svima af látunum í kringum mig :) Á uppstigningardag fór Anna aftur heim til Oslóar en við Hrefna fórum með lest til Malmö og eyddum eftirmiðdeginum þar. Mér fannst líka gaman að koma þangað og svo versluðum við pínu pons og fengum okkur að borða um kvöldið á útiveitingastað. Það var nú engan veginn nógu hlýtt til að sitja úti undir venjulegum kringumstæðum, en þeir voru með helling af gashiturum og við vorum að kafna úr hita.

Nú er það bara þetta venjulega líf sem er tekið við aftur, vinna og svoleiðis. Ísak er byrjaður í prófum og Andri var að dimitera á föstudaginn. Svo tekur alvaran við hjá honum, fyrsta prófið á þriðjudaginn. Hrefna er að spá í vinnu í Norður-Noregi í sumar og svo fer hún líklega til Afríku í haust ásamt vinkonu sinni sem líka er í læknisfræði. Kettirnir eru samir við sig en þó er Máni að gera mig brjálaða. Hann tekur alltaf upp á því á vorin að fara að merkja húsið, því þá fer hann að fara meira út og sér ókunnuga ketti útum allt. Ég er ekkert voðalega ánægð með þessa framtakssemi hans og finnst alveg óþarfi að merkja húsið svona. Er reyndar komin með nýtt sprey núna sem eyðir lykt og leysir upp lífræn óhreinindi, og fer bara reglulegar eftirlitsferðir á þessa helstu staði sem verða fyrir barðinu á dýrinu. Það er skömminni skárra en rekast alltaf á þetta að óvörum og verða jafn svekkt í hvert skipti. En samt er þetta svo skrítið, því það geta liðið nokkrir dagar án þess að nokkuð gerist en svo merkir hann nokkra daga í röð.