fimmtudagur, 3. mars 2011

Öll él birtir upp um síðir



Lighten up!, originally uploaded by Guðný Pálína.
Verður maður ekki bara að hafa það hugfast? Ég er nú aðeins að skríða saman, sem betur fer. Fór í vinnuna í morgun og Andri kom svo og leysti mig af eftir tvo og hálfan tíma. Þá fór ég bara heim og er búin að sitja og liggja til skiptis og finnst ég bara alveg þokkalega hress núna eftir kvöldmatinn. Og svona til að hressa mig við í þessu ástandi öllu saman, þá hef ég ákveðið að skutlast til Reykjavíkur um helgina... Er þvílíkt búin að grufla yfir því hvort það sé gáfulegt eða ekki - en Anna systir er að koma í heimsókn frá Noregi og ég bara verð nú eiginlega að hitta hana. Það er ekki svo oft sem við systurnar hittumst. Já eða systkinin öllu heldur, því Palli bróðir býr jú í Danmörku og er ekki oft á ferðinni hér á landi. 

Þannig að, eins og staðan lítur út núna, þá ætla ég sem sagt suður, í þeirri trú að ég muni bara hafa gott af því að komast í nýtt umhverfi og hætta að hugsa um rassinn á sjálfri mér í smá stund. Ég fer annað kvöld og gisti hjá Rósu vinkonu. Á laugardeginum tek ég svo rútuna til Keflavíkur og kíki aðeins á mömmu og svo förum við systur saman inn til Reykjavíkur þar sem Anna mun gista hjá sinni vinkonu. Svo er bara að treysta því og trúa að þetta muni hafa góð áhrif á gömlu konuna :-)

miðvikudagur, 2. mars 2011

Vinna, ekki vinna, vinna, ekki vinna...?

Oh, ég er ennþá alltof slöpp og orðin alveg ferlega þreytt á sjálfri mér. Í gær vann jú Andri fyrir mig og í dag var ég í fríi og ætlaði að "safna kröftum" en það var bara ekkert að virka. Ég ráfaði milli herbergja og gat framkvæmt grunndvallar heimilisstörf s.s. að taka úr uppþvottavélinni og þvo gallabuxur, en þar fyrir utan er ég bara búin að vera eins og slytti. Ég treysti mér ekki á fund í Lundarskóla þar sem verið var að kynna framhaldsskólana fyrir tíundubekkingum, og ég treysti mér ekki á fund með ljósmyndaskvísunum í kvöld. Og eins og alltaf þegar ég er í þessum svaka veikindaköstum mínum þá fer ég að hafa áhyggjur af öllu - og ekki bætir það úr skák. Andri er búinn að bjóða mér að vinna fyrir mig á morgun og ég þarf að svara honum... en veit ekki hvað ég á að gera. Veit vel að ég er varla vinnuhæf, en finnst ég samt einhvern veginn að ég verði að standa mína plikt. Oh, ég er að verða brjáluð á þessu ástandi!

þriðjudagur, 1. mars 2011

Líður aðeins betur í dag

Sem betur fer. Valur hitti naglann á höfuðið í gær þegar hann sagði "Þú ert nú bara veik" og meinti þá að ég væri ekki bara slöpp eins og venjulega, heldur mun veikari. Enda fékk ég Andra til að vinna fyrir mig megnið af vinnudeginum í gær, og svo í dag líka. Þetta verður svolítið asnalegt ástand þegar maður er meira og minna slappur og óupplagður, að þá áttar maður sig ekki alveg á því hvenær ástandið er orðið óeðlilegt. Svona eins og sagan um froskinn. Ef þú tekur frosk og setur í sjóðandi heitt vatn þá hoppar hann strax uppúr því. En ef þú setur frosk í volgt vatn og hitar svo vatnið smám saman þar til það er orðið sjóðandi heitt, þá áttar froskurinn sig ekki á breytingunni og er kyrr ofan í vatninu þar til hann drepst. En alla vega, þá er ég sem sagt örlítið hressari í dag, jibbý jej!

Ég sit hér og á að vera að klára að panta vörur en er bara að slæpast... sem þýðir auðvitað ekki. Best að halda áfram að panta.