laugardagur, 13. júní 2009

Laisy Daisy

Laugardagar eru einhverra hluta vegna oft hálfgerðir letidagar hjá mér. Kannski af því ég er þreytt eftir vikuna, kannski af því maður leyfir sér að sofa lengur, ekki veit ég. Í morgun svaf ég nú reyndar ekki lengur en til rúmlega átta, það var nú allt og sumt. Sennilega ellimerki að geta ekki sofið lengur ;-) Þá fórum við Valur í sund og fengum okkur svo morgunkaffi, en síðan hef ég aðallega slappað af. Langar nú eiginlega mest aftur upp í rúm að leggja mig en það er víst ekki í boði því ég er að fara að vinna klukkan eitt. Og er ekki að nenna að hafa mig út úr húsi... en um leið og ég er komin niðureftir gleymi ég bæði þreytu og leti og skemmti mér í vinnunni.

Engin ummæli: