Haustið 2004 var ég á námskeiði í Skapandi skrifum hjá Þorvaldi Þorsteinssyni. Ég minntist stundum á þetta námskeið í blogginu og fannst það alveg frábært, þó ekki hafi ég farið að skrifa sögur í löngum bunum að því loknu. Hins vegar fékk ég hugmynd að barnabók, sem situr enn í kollinum á mér, og á ef til vill eftir að rata á blað einhvern tímann.
Fyrir stuttu síðan var ég að skrifa um það hér á blogginu að mig langaði að gefa skrifunum nýtt tækifæri og þá rifjaði ég m.a. upp veru mína á námskeiðinu hjá Þorvaldi. Í framhaldinu benti Þórdís í Kópavogi mér á að á döfinni væri námskeið í ritlist sem væri m.a. haldið í Hofi hér á Akureyri. Ég skráði mig á þetta námskeið (eins og dyggir lesendur vita) og settist í framhaldinu niður og las yfir hluta af glósunum mínum af námskeiðinu hjá Þorvaldi. Þannig má segja að hann hafi verið mér ofarlega í huga upp á síðkastið. Það var því algjört áfall að sjá á netinu í gær að hann væri látinn.
Á sínum tíma hafði það mikil áhrif á mig að kynnast honum og hans lífsviðhorfum - og hann gaf mér von um að einn góðan veðurdag gæti ég farið að rækta hæfileika mína - þegar ég gæfi því pláss í lífi mínu. Það er þó alveg ljóst að ekki getur maður beðið að eilífu eftir rétta tímanum, því enginn veit hvað hann á langt eftir. Samanber það að Þorvaldur var bara 4 árum eldri en ég. Svo það er eins gott að láta drauma sína rætast meðan tækifæri er til.

Vel skrifað um áhugaverðan mann, er væntanlega átti margt eftir ógert, myndin sýnir hverfulleikann.
SvaraEyðaHH
Takk Halur minn kær.
SvaraEyða