Smásögur / Ljóð
▼
fimmtudagur, 24. maí 2012
Umfjöllun um Potta og prik á bloggsíðu
Það er flott umfjöllun um búðina okkar Sunnu á bloggsíðunni mAs. Við erum kannski ekki þær allra duglegustu að koma okkur á framfæri, svo það er extra gaman að fá svona óvænta umfjöllun.
Það er að segja, þetta kom kannski ekki alveg á óvart, að því leytinu til að þær systur sem standa fyrir síðunni, voru búnar að hafa samband við okkur og lýsa yfir áhuga á því að gera þetta. Þær sögðu að Pottar og prik væru ein uppáhalds verslunin þeirra á Akureyri og þær kíkja alltaf við hjá okkur þegar þær koma norður.
Við tókum líka þátt í smá leik með þeim. Gáfum FireWire grillpinna, sem þær ætla að gefa heppnum lesanda bloggsins, þegar þær hafa náð 100 vinum á facebook.
Þær eru reyndar ekki einar um það að koma alltaf við hjá okkur þegar þær eru á Akureyri. Fyrr í vikunni komu hjón í búðina. Þau búa líka fyrir sunnan og koma alltaf og versla aðeins við okkur þegar þau eru á ferðinni hér norðanlands. Í fyrra tókum við spjall saman og í ljós kom að sonur þeirra hafði búið í Tromsö, alveg eins og ég. Og núna þegar þau komu, heilsuðu þau mér með miklum virktum. Bara gaman að því :-)
Í dag gerðist líka dálítið skemmtilegt í vinnunni. Í búðina komu hjón sem sögðust reka farfuglaheimili á Austfjörðum. Þau voru að leita að ákveðnum hlut, fati sem hægt væri að nota undir álegg. Fatið þurfti að vera ferkantað og helst hvítt á litinn. Ég sýndi þeim það sem við eigum en ekkert hentaði. Svo versluðu þau annan hlut og héldu síðan á brott. Eftir að þau voru ákvað ég að fá mér að borða og byrjaði að háma í mig salat.
Á meðan ég var að borða ráfaði ég inn á lager og þar rak ég augun í postulínsfat sem ég hafði gleymt að sýna fólkinu. Sá strax að þetta væri líklega akkúrat rétta fatið og fannst miður að hafa ekki munað eftir því. Datt þá í hug að finna farsímanúmerið þeirra og hringja, svona ef ske kynni að þau væru kannski ennþá á Glerártorgi. Þau voru hins vegar farin burt af torginu og komin eitthvert út í bæ. Ég sagði þeim samt erindið og sagðist bara hafa viljað láta þau vita, svona ef þau hefðu verið enn á torginu. Svo kvöddumst við.
Nokkru síðar birtust þau samt. Ég sýndi þeim fatið, sem þau voru mjög hrifin af, og keyptu tvö stykki. Síðan hurfu þau á braut sæl og glöð og ég var mjög ánægð með dagsverkið :-)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli
Mér þykir afskaplega vænt um það þegar fólk gefur sér tíma til að skrifa mér nokkrar línur. Ef þú ert ekki skráður notandi (með Google account) hakaðu þá við "Nafnlaus" og skrifaðu bara nafnið þitt undir.
Bestu kveðjur,
Guðný