Fyrir vinnu í gær fór ég smá rölt í Lystigarðinum með myndavélina. Ég hélt að ég myndi finna krókusa - en fann þá ekki. Eina blómstrandi blómið sem ég fann var þetta litla gula, en það heitir því dásamlega nafni "Vorboði". Ég þurfti nánast að leggjast á jörðina til að ná þessu sjónarhorni af því, enda var það svo pínulítið, aðeins 4-5 cm. hátt.

Indælt.
SvaraEyðaÆjá, gott að sjá merki um vor :)
SvaraEyðaBráðum koma páskar og síðan kemur vor : ) En heppilegt nafn annars.
SvaraEyða