Smásögur / Ljóð

miðvikudagur, 14. júlí 2010

Reyni að standa mig betur...

Hér kemur svokallað punktablogg:
  • Það styttist í 2ja vikna sumarfríið mitt - sem er jákvætt :O)
  • Það er mikið að gera í vinnunni þessa dagana - sem er bara gaman
  • Við erum að fara að mála húsið - eða Valur og synir eru að fara að mála húsið
  • Liturinn er nánast ákveðinn...
  • Það er sól í augnablikinu
  • Ég fór í klippingu og litun í dag og er voða sæt, hehe ;)
  • Ég er að fara að borða Holtselsís, nammi namm
  • Við Valur og Ísak förum til Toronto þann 20. ágúst og verðum í viku
  • Ég hef tekið nokkuð af myndum að undanförnu og fer nú bara svolítið fram
  • Kettirnir hafa dregið stórlega í land með að merkja húsið - húsfreyjunni til mikillar gleði
  • Það er búið að vera óskaplega gaman að hafa ættingjana alla í heimsókn
  • Og nú man ég ekki eftir fleiru í bili

2 ummæli:

  1. Kærar, kærar þakkir fyrir okkur! Sigurður var hæst ánægður með að "fá að slappa af" á Akureyri og við K-E vorum jafn ánægð með að upplifa það sem við gerðum. Kær kveðja frá Önnu systur :-)

    SvaraEyða
  2. Gott að heyra að allir voru ánægðir :) Nú er kominn vinnupallur hér utan við húsið og Valur ákveðinn í að byrja að mála í dag. Ég fór enn eina ferðina að fá litaprufu í morgun en hún var misheppnuð - svo við höldum okkur við þennan gulgræna.

    SvaraEyða

Mér þykir afskaplega vænt um það þegar fólk gefur sér tíma til að skrifa mér nokkrar línur. Ef þú ert ekki skráður notandi (með Google account) hakaðu þá við "Nafnlaus" og skrifaðu bara nafnið þitt undir.
Bestu kveðjur,
Guðný