
Herra Halur og frú tóku daginn nokkuð snemma og skelltu sér í fjallið. Átti Halur vart til orð, svo mikil breyting fannst honum hafa orðið á skíðastíl frúarinnar á nýju skíðunum. Í gleðivímu var ákveðið að prófa eina ferð upp í Strýtu en þangað hafði frúin ekki komið í ca 20 ár. Ekki vildi þó betur til en svo að þegar hún var að fara úr lyftunni fataðist henni flugið og datt á rassinn. Við þetta litla fall fékk hún hnykk á bakið og því fékk skíðaferðin fremur snöggan endi. Á sama tíma var reyndar að verða ólíft í brekkunum fyrir fólki svo það var eiginlega sjálfhætt. En hér má sjá Hal og frú í skíða"gírnum". Annars eru tengdaforeldrarnir að koma í heimsókn og verða hjá okkur yfir páskana og það er gaman að því. Ég var að baka speltbrauð í fyrsta sinn og ilminn leggur um húsið. Vonandi bragðast það jafn vel!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli
Mér þykir afskaplega vænt um það þegar fólk gefur sér tíma til að skrifa mér nokkrar línur. Ef þú ert ekki skráður notandi (með Google account) hakaðu þá við "Nafnlaus" og skrifaðu bara nafnið þitt undir.
Bestu kveðjur,
Guðný