Andri fór á árshátíð MA í gærkvöldi. Hann skutlaði sér í jakkafötin, blés á sér hárið og var tilbúinn, en stelpurnar þurftu að fara í förðun, greiðslu og galakjóla... eða svona næstum því. Ég var í kvennaklúbb í gær og þar var dóttirin á bænum að fara á árshátíðina, alveg stórglæsileg, og þá fórum við mömmurnar að rifja upp hvernig þetta var þegar við vorum í MA. Það var engin förðun, engin greiðsla og kjólarnir voru kapítuli út af fyrir sig. Einhverjir prjóna- eða flauelskjólar, alveg hrikalega ömmulegir eitthvað. Ég var nú reyndar í buxum og peysu á minni einu árshátið í þessum skóla en man vel eftir panikk ástandinu þegar ég fór í bæinn og var að leita að einhverju til að vera í.
Annars:
- gerðum við laufabrauð í dag ásamt Sunnu, Kidda og þeirra + okkar börnum
- sat tafla föst í hálsinum á mér í morgun í nærri þrjú korter - og það var ekki gott
- er ég með bólu á tungunni - og það er ekki heldur gott
- er ég að skána í hnénu
- settum við upp jólaljós í stofunni í dag
- komst ég ekki í sund í morgun út af þessu háls-veseni
- er ég alveg að sofna og klukkan er bara 22.43 á laugardagskvöldi
- eru tengdó að koma í heimsókn um næstu helgi
- þurfum við að standa skil á virðisaukaskattinum eftir þrjá daga og ég hef ekki komið nálægt bókhaldi síðan ég lærði það fyrir sex? árum síðan
- er ætlunin að setja upp jólagardínur í eldhúsinu á morgun
- ætti ég kannski að gera jólakrans til að hafa við útidyrnar
- hef ég ekkert meira að segja

Engin ummæli:
Skrifa ummæli
Mér þykir afskaplega vænt um það þegar fólk gefur sér tíma til að skrifa mér nokkrar línur. Ef þú ert ekki skráður notandi (með Google account) hakaðu þá við "Nafnlaus" og skrifaðu bara nafnið þitt undir.
Bestu kveðjur,
Guðný