Smásögur / Ljóð

miðvikudagur, 20. mars 2013

Velkomin aftur :-)


Svona var mér heilsað fallega í sundlauginni í morgun, þegar ég hafði mig loks í sund eftir þriggja mánaða letikast. Það er meira hvað vaninn er sterkur og þegar maður hættir að synda á morgnana þá býr maður til nýjar morgun-venjur og það er ótrúlega erfitt að koma sér af stað aftur í sundið. Vonandi er þetta byrjunin á betri sund-tíð, hehe ;-)

Ég synti nú samt bara 6 ferðir, svona til að drepa mig ekki alveg á þessu, en fjöldi ferðanna er náttúrulega aukaatriði í stóra samhenginu.

Fyrir utan sund í morgun er ég búin að vinna 4 tíma, leggja mig í tæpan klukkutíma, fara á pósthúsið, sitja á hárgreiðslustofu í 2 tíma, fara út að ganga, hita upp kvöldmat handa okkur Ísaki og fara á fund í ljósmyndaklúbbnum. Þetta er nokkuð ströng dagskrá, svona miðað við mig, og ég er pínu spennt að sjá hvernig formið verður á morgun.

Ég þarf samt eiginlega að halda haus fram á laugardag því þá er „hittingur“ á námskeiðinu í skapandi skrifum. Og það fer lunginn úr deginum í hann. Hlakka til og kvíði fyrir.


2 ummæli:

  1. Ég mundi segja að þetta væri bara nokkuð ströng dagskrá yfirhöfuð!! Eigum við að reyna að heyrast um helgina? Verð í fríi alla páskana, jibbí....

    SvaraEyða
  2. Já, stefnum að því að heyrast á sunnudaginn, líst vel á það :) Samgleðst þér með að vera í fríi um páskana :)

    SvaraEyða

Mér þykir afskaplega vænt um það þegar fólk gefur sér tíma til að skrifa mér nokkrar línur. Ef þú ert ekki skráður notandi (með Google account) hakaðu þá við "Nafnlaus" og skrifaðu bara nafnið þitt undir.
Bestu kveðjur,
Guðný