Smásögur / Ljóð
mánudagur, 29. ágúst 2011
Smá úttekt á virkni LCHF mataræðis
Fyrstu tvær vikurnar gengu vel, ég var ótrúlega hress og saknaði sykurs, hveiti, kartaflna, pasta og hrísgrjóna nánast ekki neitt. Svo fór hins vegar aðeins að halla undan fæti. Þreytan kom aftur og með henni löngun í allt sem gefur skjótfengna orku. Ég verð nú samt að segja að ég hef verið ótrúlega dugleg að falla ekki í sykurpyttinn, þrátt fyrir allt. En sem sagt, þreytan hefur enn sem komið er ekki minnkað. Á tímabili hélt ég kannski að ég væri að ná mér hraðar upp eftir hvert þreytu-breakdown, en eftir að hafa legið í rúminu í allan gærdag og verið eins og drusla í dag (þegar ég átti frí og ætlaði að gera eitthvað skemmtilegt), þá er sú skoðun á undanhaldi. Verkir í skrokknum eru líka svipaðir. Ég hef heyrt/lesið að vöðvaverkir eigi að lagast mikið á þessu mataræði, en það er ekki mín reynsla enn sem komið er. Það sem hins vegar er betra, er hin svokallaða heilaþoka. Ég er ekki alveg jafn sljó yfir höfðinu, svona dags daglega, eins og ég var. Meltingin hjá mér var líka mun betri fyrstu 2-3 vikurnar, en síðustu 5-7 dagana hef ég verið skelfileg í maganum, svo það er greinilega ekkert til að treysta á. Kannski vegna þess að ég stórjók inntöku mína af mjólkurvörum...? Eða bara vegna þess að ég datt í stresskast vegna ljósmyndasýningar og fleiri hluta?
Æ jæja, það hvarflaði sterklega að mér í gær þegar ég lá í heiladauðu ástandi í sófanum að gefast upp á þessu mataræði. Mér fannst það svo sem ekki vera að gera það mikið fyrir mig. En þá áttaði ég mig á þessu með hugarstarfsemina sem er aðeins betri, og ekki veitti nú af. Er ekki frá því að ég sé líka aðeins minna gleymin... Þannig að, já ég ætla að þrjóskast við enn um sinn.
Það rifjaðist líka upp fyrir mér að ég er mun betri af hárlosinu sem hefur verið að hrjá mig frá því um áramót. Já og eitt annað og enn mikilvægara. Ég sef miklu betur - að minnsta kosti svona í heildina séð. Sef fastar og vakna ekki eins oft á nóttunni. Stundum næ ég því meira að segja að sofa non stop frá miðnætti og til ca. 7 eða 8 næsta morgunn.
Myndin sem ég var með á sýningunni
Annars er sannkallaður svefn-sólarhringur nú að baki og vonandi þarf ég aðeins minna að sofa í dag... Ég var í tvo og hálfan tíma við opnun sýningarinnar á laugardaginn, í steikjandi hita og sól, og kannski hef ég bara fengið sólsting. Eða svona "næstum því" sólsting. Ég gerði nákvæmlega ekkert annað en liggja og dorma endalaust í sófanum í gær. Ekki hindraði það mig samt í því að sofna í gærkvöldi og steinsvaf ég í alla nótt.
Annars var bara voða gaman á sýningunni. Það mætti margt fólk og flestir mjög jákvæðir á þetta framtak okkar. Mér finnst samt alltaf ótrúlega erfitt að sýna svona opinberlega, en ætli það venjist ekki (einhvern tímann).
Nú er ég í fríi í dag og Valur er í tveggja vikna fríi, og spurning í hvað dagurinn verður notaður. Ég er nú hálf drusluleg ennþá, en hef ekki áhuga á að liggja annan dag í sófanum, það er alveg á hreinu.
þriðjudagur, 23. ágúst 2011
Bær sem ég veit ekki hvað heitir
Annars er allt við það sama. Ég er að reyna að sofa eins mikið og líkaminn minn vill sofa þessa dagana, sem þýðir að ég kem mun seinna í sund en venjulega. Í morgun kom ég í sund rétt fyrir tíu og uppskar mikla undrun konunnar í skápnum við hliðina á mér. Henni fannst það greinilega pínu óþægilegt þegar þetta venjulega stemmir ekki lengur. Ég er sem sagt vön að vera að fara þegar hún er að koma, en nú var það akkúrat öfugt. Ég sagði við hana að ég væri bara komin í óregluna... hm, en ætli það verði nú svo lengi enn. Ætli sé ekki best að reyna að komast aftur í rútínu. Það hefur hingað til gerst á haustin þegar Ísak byrjar aftur í skólanum, en nú byrjar skólinn hjá honum ekki fyrr en eftir nærri 3 vikur, svo kerfið er allt í rugli. Annars var hann farinn að vakna sjálfur á morgnana í sumar, þannig að ef ég vil þá get ég alveg sofið lengur þá daga sem ég er að vinna seinnipartinn, svona eins og í dag. Jæja, sjáum bara hvað setur.
mánudagur, 22. ágúst 2011
Guðný kleyfhugi
sunnudagur, 21. ágúst 2011
Majones
1 stórt egg við stofuhita
1 msk. ferskur sítrónusafi
1 tsk. dijonsinnep
1/8 tsk salt
1/8 tsk pipar
1 bolli ólífuolía
Setjið allt nema ólífuolíuna í blandarann og látið ganga í 10-15 sek. Hellið þá ólífuolíunni smátt og smátt saman við, þar til massinn þykknar. Kælið í 30 mín.
laugardagur, 20. ágúst 2011
Falleg blóm sem ég man ekki hvað heita
En eru af sömu ætt og sápublóm... hehe sem heita ekki sápublóm. Ég þarf að fletta upp í einhverri jurtabók. Það er náttúrulega skömm að því að opinbera fáfræði sína á þennan hátt.
föstudagur, 19. ágúst 2011
Föstudagsþreyta
fimmtudagur, 18. ágúst 2011
Klisjumynd
Ein frá í fyrrahaust, a photo by Guðný Pálína on Flickr.Já það er misjafn smekkur manna. Svona myndir þættu nú einhverjum fallegar, en öðrum finnst þetta vera algjör klisja. Blár himinn sem ekki sér ský á, speglun í spegilsléttum sjó... o.s.frv. En mér finnst hún falleg á sinn hátt og fann hana þegar ég var að leita í gegnum myndasafnið mitt að myndum fyrir ljósmyndasýninguna á Akureyrarvöku. Við Álfkonur verðum sem sagt með enn eina ljósmyndasýninguna (ef ég hef sagt það áður þá verður bara að hafa það). Ég ætlaði nú eiginlega ekki að vera með... en svo hélt Valur að ég myndi sjá eftir því - svo ég sló til. Þetta er nú aðeins meira mál en áður, sérstaklega þar sem sýningin verður utandyra og myndirnar verða nokkuð stórar, eða 121 x 86 cm. Þær verða settar á steinstöpla sem staðsettir verða fyrir utan menningarhúsið Hof. Og já nóg um það. Nú var Valur að koma heim, en hann var í jarðarför í Reykjavík í dag. Svo það er best að fara að fá sér í svanginn - þessa fínu heimagerðu böku sem frúin var að elda.
þriðjudagur, 16. ágúst 2011
Mikið sem er leiðinlegt að fara til tannlæknis
Ég var nefnilega að vinna í morgun og þó það væri rólegt í afgreiðslunni, þá hafði ég nóg að gera annað, og gleymdi tímanum þar til klukkan var orðin rúmlega hálf tvö. Þá áttaði ég mig á því að ég ætti að mæta til tannsa eftir tíu mínútur, og ákvað að hringja í starfsmanninn sem átti að leysa mig af, til að athuga hvort hann væri ekki með það á hreinu að hann hefði átt að koma fyrr. Hann var reyndar búinn að steingleyma því en dreif sig af stað. Ég kom samt 5 mínútum of seint til tannsa og var sveitt og með dúndrandi hjartslátt þegar ég settist í stólinn hjá honum. Hann var nú ekki stressaðri en það, að hann lét mig bíða í rúmar 5 mínútur eftir sér.
Jæja svo lá ég þarna með gapandi ginið í klukkutíma, og þegar ég ætlaði að standa á fætur aftur fékk ég þvílíkan svima, að ég þurfti að sitja á bekknum í smá stund og jafna mig. Eftir að ég var búin að borga tættist ég svo út í þorp að sækja vörur. Fór með vörurnar í búðina svo hægt væri að vinna við að taka þær upp og verðmerkja. Síðan fór ég með bókhaldsmöppurnar fyrir árið 2010 til endurskoðandans, en ég ætlaði að vera löngu búin að því. Í leiðinni þaðan kíkti ég inn í eina fatabúð, en fann að ég var ennþá hálf máttlaus og með hálfgerðan svima, svo ég dreif mig nú bara heim.
Nú er ég búin að borða afgang af morgunmatnum mínum (sem var í dag eggjakaka með púrrulauk, skinku og osti) og líður mun betur. Deyfingin er líka farin að minnka, sem betur fer. Næst á dagskrá er að fara og kaupa í matinn. Valur ætlar að elda pylsupasta og ég ætla að prófa að gera mér "pasta" úr kúrbít í staðinn fyrir venjulegt pasta.
sunnudagur, 14. ágúst 2011
Kúrbíts- og gulrótarkaka
P.S. Hm, mér varð illt í maganum eftir þessa blessuðu köku. Kannski vegna þess að í stað sykurs er í henni Xylitol, og ég er óvön því...
Snilldar hrökkbrauð
5 egg
2 1/2 dl. sólblómafræ
2 1/2 dl. sesamfræ
2 1/2 dl. möluð hörfræ
2 1/2 dl. saxaðar valhnetur
1 tsk. salt
Öllu blandað saman og hellt í smurða ofnskúffu. Bakað í miðjum ofni við 190 gráður í 10-11 mín.
Skerið í bita af æskilegri stærð þegar hefur kólnað aðeins. Geymist í ísskáp í 4-5 daga. Hentar vel að frysta og þiðnar á nokkrum mínútum. Því miður fylgir engin mynd... en já mér finnst þetta mjög gott :)
Sólin farin :-(
Kosturinn við veðrið (eða skort á sól) er sá að þá er maður löglega afsakaður til að vera inni og slappa af. Tja, kannski ekki þetta síðarnefnda, en ég er í þörf fyrir að hvíla mig og það er svo sem ágætt að geta gert það án þess að vera í stresskasti yfir því að vera að missa af góðu veðri úti. Ef ég væri í stuði, þá vantar nú aldeilis ekki verkefnin sem ég gæti unnið í hér innanhúss, en mér sýnist að það verði nú lítil framkvæmdagleði í dag. Kemur í ljós, kannski lifnar eitthvað yfir mér þegar líður á daginn.
laugardagur, 13. ágúst 2011
Fjaran í Búðardal
Þegar við Valur vorum að koma að vestan, stoppuðum við m.a. í Búðardal. Þar var ansi hvasst, en engu að síður afar fallegt niðri við sjóinn. Svo fundum við líka nýlegan veitingastað þarna niður frá, þar sem við gátum keypt heimagerða súpu og brauð, svo ekki skemmdi það nú fyrir.
Annars er bara allt svipað að frétta. Dagarnir líða en í þessu dásemdarveðri sem verið hefur undanfarið er nú ekki hægt að kvarta. Mér finnst bara dýrðlegt að geta farið í sund á morgnana fyrir vinnu, þó ég syndi ennþá ekki nema ca. 10-12 ferðir og stoppi oft, til að sleikja sólina. Ég hef líka verið dugleg að fara í útiklefann, en því miður er sólin ekki komin þangað "inn" fyrr en um níu- hálftíuleytið, og það er eiginlega of seint svo ég nái henni.
Ég hef að langstærstum hluta haldið mig við þetta nýja mataræði og ekki dottið í sykur-sukk-kast ennþá. Gærdagurinn var lang erfiðasti dagurinn því þá var ég svo ótrúlega þreytt allan daginn - og með þreytunni kemur sykurlöngunin. En ég náði svona nokkurn veginn að standa mig. Fékk mér grænt te og síðan kaffi í vinnunni, svona til að halda mér vakandi. Svo þegar ég kom heim lagðist ég á sólbekk fyrir aftan hús og steinsofnaði. Ég sofnaði líka í sófanum eftir kvöldmatinn, og já sofnaði fast og vel í gærkvöldi og steinsvaf meira og minna til klukkan hálf tíu í morgun. Það er nú aldeilis gott að geta hvílt sig þegar maður er þreyttur ;)
Áðan fór ég reyndar á kaffihús með Sólrúnu og Rósu vinkonum mínum, og þá reyndi aðeins á, því það var ekkert í boði annað en sykurkökur. Ég valdi ostatertu og bað um rjóma með og borðaði svo bara hálfa sneið. Bað reyndar þjóninn um að fá "flís" af ostatertu en fékk auðvitað stóra þykka sneið. Rósa hló nú að mér, fyrir að mér skyldi detta það í hug að biðja um flís af kökunni, en það mátti reyna... En sem sagt, trixið er að fá sér þá rjóma með, því fitan veldur því að blóðsykurinn hækkar ekki jafn hratt. sunnudagur, 7. ágúst 2011
Í kvöldsól

Við Valur fórum aðeins út á Gáseyri í gærkvöldi. Það stendur alltaf fyrir sínu sem útivistarsvæði og alveg dásamlegt að hafa aðgang að þessum flotta stað. Sólin var aðeins að stríða okkur. Var fjarverandi framan af en kom svo loks þegar við vorum farin að huga að heimferð. Þá "þurftum" við auðvitað að stoppa aðeins lengur, og þá náði ég þessari mynd. Kaldbakur sést þarna í fjarlægð, en reyndar ekki í fókus.
Það hefur verið afskaplega fallegt veður í dag, þó ég hafi nú haldið mig mest innandyra. Hitastigið svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir, 11 gráður og norðanátt, en sólin skín og það er fyrir mestu. Ég fór aðeins út í garð og reitti arfa í smá stund og við Valur snyrtum Seljuna, sem hefur aldrei náð fyrri sjarma eftir að hún fór á hliðina og við þurftum að færa hana.
Annars er dagurinn í dag sá þriðji í röð með höfuðverk og það fer að verða býsna þreytandi ástand. Kannski eru þetta fráhvarfseinkenni í tengslum við nýja mataræðið... en ég hef verið mjög dugleg að sleppa kolvetnum undanfarið. Kannski ekki sleppt þeim alveg 100%, enda ekki markmiðið hjá mér að megrast, svo ég má alveg borða pínu pons af kolvetnum. Snilldin er sú að við eigum þessa fínu næringarvog, svo það er minnsta málið að taka t.d. gulrót og vigta hana og fá fram upplýsingar um kolvetnamagn í gulrótinni (m.v. þyngd hennar). Ég ætla nú ekki að vera með neinar yfirlýsingar um það hversu vel mér á eftir að ganga með þetta mataræði, en ég finn strax mun á því hvað ég er miklu betri í maganum.
Ísak byrjar í ökukennslu á morgun og er spenntur fyrir því. Það er um að gera að nota tímann þar til skólinn byrjar, því eins og venjulega byrjar MA svo seint, og sumarvinnan hjá Ísaki búin, svo hann hefur ekki margt við að vera á daginn.
fimmtudagur, 4. ágúst 2011
Mataræði
Undanfarið hef ég verið að lesa mér svolítið til um Low-Carb-High-Fat (kolvetnasnautt en fituríkt) mataræði og ég verð að segja að það er ýmislegt þar sem talar til mín. Þónokkrir læknar á Norðurlöndum eru farnir að mæla með þessu mataræði, einkum vegna þess að það hefur góð áhrif á fólk og dregur úr einkennum ýmissa sjúkdóma. Fólki með sykursýki 2 vegnar t.d. mun betur á þessu fæði heldur en því fæði sem yfirleitt er mælt með fyrir slíkt fólk. Á flugvellinum í Osló keypti ég bók eftir norskan lækni, dr. Sofie Hexeberg og er búin að gleypa hana í mig (bókina þ.e.a.s.). Þar er að finna sögur af fólki sem glímdi við ýmis vandamál og leið öllum mun betur við að skipta yfir á þetta mataræði. Sýnd eru dæmi um blóðprufur fyrir og eftir - og það sem best er, þegar stóð til að hún myndi skrifa bók, þá hafði læknirinn samband við 35 fyrrverandi sjúklinga sína og komst að því að 33 þeirra voru enn á þessu mataræði. Það finnst mér svo frábært því það sýnir jú að þetta virkar fyrir fólk.
Og þá er bara spurningin, hvernig gengur mér (sykurfíkli með meiru) að fylgja svona mataræði? Sofie mælir með því að byrja rólega og draga smám saman úr kolvetnamagni, svo maður fái slæm fráhvarfseinkenni (nokkuð sem hún sjálf klikkaði á og varð eiginlega fárveik). En já ég er að minnsta kosti aðeins farin að skoða þetta ... :-)
miðvikudagur, 3. ágúst 2011
Draumadagur
þriðjudagur, 2. ágúst 2011
Fimmtudagur í Noregi
Það var gott að finna skuggsæla bletti inn á milli, þvílíkur var hitinn úti.
Falleg tjörn og þessar hvítklæddu konur komu alveg eins og kallaðar inn í myndarammann. Það gerði reyndar líka karlmaður sem setti hendina inná myndina (óvart), en ég er búin að klippa hann burtu ;)
Eins og sjá má kenndi ýmissa grasa þarna. Þessi bekkur leit út fyrir að vera nokkuð gamall.
Já og inn á milli trjánna rákumst við á þessar kínversku/mongólsku? styttur.
Þessi trjágöng voru býsna tilkomumikil, og fjölbreyttur blómagróður eins og sjá má.
Þetta er hús auðkýfingsins og má ekki fara upp að því (skiljanlega).
Á grasflötinni beint fyrir framan íbúðarhúsið er þessi "bygging". Þegar staðið er inni í henni miðri sést niður trjágöngin sem sáust fyrr.
Þessi varð"maður" gætir tröppunnar upp að íbúðarhúsinu. Við Anna tylltum okkur á bekkinn þarna í smá stund, enda nauðsynlegt að slaka aðeins á og njóta þegar maður er á svona stað.
Ég tók ekki eftir því fyrr en Anna benti mér á það, en hér sér maður sjóinn blasa við í fjarska. Mér fannst nú helst eins og ég væri stödd í einhverju allt öðru landi en Noregi, t.d. á frönsku rívíerunni, m.v. útsýni og hitastig.
mánudagur, 1. ágúst 2011
Gulur akur
Miðvikudagur í Noregi
Ég var hálf púnkteruð eftir göngutúrinn og sat bara á mínum rassi (já og lá á sófanum) á meðan Anna var í dugnaðarkasti og sló lóðina. Seinni partinn fór gamla að hressast aftur og fannst þá alveg nauðsynlegt að kíkja aðeins í Ski storsenter, sem er stærðarinnar verslunarmiðstöð. Anna var svo væn að koma með mér þangað og náði ég að kaupa tvennar leggings/buxur og einn bol. Nokkuð gott bara ;) Svo fórum við á einhvern bar/veitingastað þar sem við fengum okkur Tapas og sátum úti og borðuðum. Þvílíkur draumur í dós að lenda í svona góðu veðri, segi nú ekki meira!


















