Smásögur / Ljóð

mánudagur, 13. september 2004

Afmælisbarn dagsins

er Anna systir mín, til hamingju með afmælið Anna :o)

Nú væri gott að geta skroppið í afmæliskaffi til hennar en það er aðeins of langt á milli, eða ca. 2-3 þúsund kílómetrar (þetta var lausleg ágiskun míns ektamanns). Hún býr sem sagt í Osló og þar er haustið að koma, alveg eins og hér. Orðið dimmt á kvöldin og haustlitir að taka völdin í náttúrunni.

Ég er búin að panta mér ferð til Reykjavíkur á fimmtudaginn kemur - erindið suður er að fara á 5. ára afmælisfund FKA . Ég er nefnilega búin að vera að berjast fyrir því að stofnuð verði Norðurlandsdeild félagsins og komu þær FKA konur norður í vor og kynntu starfsemi félagsins. Þannig að maður verður víst að sýna lit og mæta á svæðið þegar það er "afmælisveisla" hjá þeim. Fæ að gista hjá Rósu vinkonu minni og ætla að stoppa í höfuðborginni fram á sunnudag. Hlakka mikið til að komast í smá húsmæðraorlof, kíkja á næturlífið með Rósu (vonandi), skreppa í búðir og hitta vinkonur.

Hjá mér situr Valur og er að skoða reiðhjólabæklinga. Hefur átt sama hjólið í 15 ár (því miður hefur það dugað svona hræðilega lengi, enda af "Det Beste Sykkel" tegundinni) og er farinn að dauðlanga í nýtt hjól. Nú er bara spurningin hvort hann lætur duga að skoða hjól á netinu, athuga hvað þau kosta á Íslandi og USA og láta sig dreyma........eða hvort hann lætur vaða og skellir sér á eitt stykki hjól. Framhald í næsta þætti........

1 ummæli:

  1. Takk fyrir afmæliskveðjuna systir mín góð. Hér er sem sagt haust og eplunum fjölgar sem hrynja af eplatrénu. En þau eru góð á bragðið, góð í eplapæ og eplamauk. Eins er hægt að frysta þau til að nota í vetur í eplakökur, pæ og vínarbrauð....namm, namm.......
    A--a

    SvaraEyða

Mér þykir afskaplega vænt um það þegar fólk gefur sér tíma til að skrifa mér nokkrar línur. Ef þú ert ekki skráður notandi (með Google account) hakaðu þá við "Nafnlaus" og skrifaðu bara nafnið þitt undir.
Bestu kveðjur,
Guðný