Smásögur / Ljóð

föstudagur, 20. ágúst 2004

Verð að monta mig

Er komin með nýjan Powerbook Makka en sá gamli gaf upp öndina eftir 5 ára stanslausa notkun og þótti ekki taka því að láta gera við hann. Og svo það sé sagt, hann bilaði ALDREI á öllum sínum ferli. Þannig að það þótti nokkuð sjálfsagt að kaupa nýjan Makka þegar ákveðið var að fjárfesta í nýrri tölvu svo frúin á heimilinu gæti haldið áfram að færa bókhaldið og greiða reikningana rafrænt. Það er aldrei að vita nema þessi nýja tölva verið til þess að skáldagyðjan verði heimsótt á nýjan leik en eftir að hafa fengið 3 smásögur eftir mig birtar í Nýju lífi þá hef ég bara ekkert skrifað. NB! Var líka tölvulaus! Gat fengið að nota vinnutölvuna hans Vals - og gerði það svo eftirminnanlega þegar ég þurfti að undirbúa kennslu í Markaðsfræðinni síðasta vor - og minn heittelskaði þurfti margoft að bíta í það súra epli að tölvan var upptekin þegar hann ætlaði að nota hana. Þannig að nú ætti að draga verulega úr konfliktum á heimilinu :0) Meira að segja Ísak getur tekið gleði sína að nýju því hann fékk aldrei að fara á netið á vinnutölvu pabba síns vegna hættu á vírusum en það eru engir vírusar á Makkanum.

1 ummæli:

  1. Til hamingju elskan, þetta áttirðu nú skilið. Skrítið hvað tölvukaup eru erfið hérlendis, flestir kaupa jú eftir prís en það er engin grís því Makkinn í samanburði við hitt dótið er ekki bara öðruvísi, hann hefur eigið líf og veitir viðmót sem gefur líf.

    Eftir fiskinn á Webernum og Penfoldinn líður manni nú vel og það besta er að strákarnir borða beinhreinsaðan fisk úr Mývatnsánni góðu þar sem ég bráðlega leggst á milli þúfna innan um hauströkkrið (YFIR MÉR).

    Ég minni síðan alla á að hlusta á költ bandið Súkkat, sem er sennilega það besta hérlendis þótt víðar væri leitað milli þess sem rafrokk hljómar á 100 db eða meira, ekki meira núna.

    Bara að skáldagyðjan nái tökum á frúnni og hún fyllist ekki neinni tregðu eða fullkomnunaráráttu.

    SvaraEyða

Mér þykir afskaplega vænt um það þegar fólk gefur sér tíma til að skrifa mér nokkrar línur. Ef þú ert ekki skráður notandi (með Google account) hakaðu þá við "Nafnlaus" og skrifaðu bara nafnið þitt undir.
Bestu kveðjur,
Guðný