Smásögur / Ljóð

þriðjudagur, 10. ágúst 2004

Er orðin steikt í höfðinu

af að glápa á tölvuskjáinn. Það er mér hulin ráðgáta hvernig hann Andri sonur minn getur setið fyrir framan skjáinn í 12 tíma á dag án þess að þreytast. Ég er búin á því eftir hálfan vinnudag. Við Bryndís erum að pikka niðurstöður skoðanakönnunar inn í tölfræðforrit og eru þetta yfir 200 spurningalistar (á eftir að fjölga því við erum ekki alveg búnar að hringja út).
En talandi um að vera steikt í höfðinu, þá var ég nú stundum orðin ansi sljó þegar við stóðum í úthringingum. Það sést best á því að mér tókst að spyrja forstöðumann kirkjugarðanna hvort afkoma síðasta árs væri betri eða verri en gert hefði verið ráð fyrir!! (Ég er SNILLINGUR :-)Hann lét sér náttúrulega hvergi bregða og sagði að það væru nú ekki miklar sveiflur milli ára í rekstrinum hjá þeim....



1 ummæli:

  1. Þetta er bæði rétt og rangt með tölvuna, tíminn áreiðanlega lengri hjá drengnum. Það er nú gott að ég skuli vera kominn "inn-undir" hjá þér eða þú "sett mig inn" hjá þér; vonandi tekst mér það líka jafnvel. Sveiflurnar í garðinum eru góðar og einu sinni lést um helmingur vistmanna á einu elliheimili suður með sjó hálfan vetur. Þetta er bara gott hjá þér. Er að borða banana þegar þetta er skrifað.
    Valur

    SvaraEyða

Mér þykir afskaplega vænt um það þegar fólk gefur sér tíma til að skrifa mér nokkrar línur. Ef þú ert ekki skráður notandi (með Google account) hakaðu þá við "Nafnlaus" og skrifaðu bara nafnið þitt undir.
Bestu kveðjur,
Guðný